Öll fasteignafélögin gætu hækkað í verði Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. júní 2015 10:00 Á meðal þeirra eigna sem Eik keypti fáeinum mánuðum áður en félagið var skráð á markað voru stórar eignir í Kópavogi.fréttablaðið/gva
Innistæða er fyrir hækkunum á gengi bréfa í öllum skráðu fasteignafélögunum þremur, samkvæmt nýju verðmati fjármála- og hagfræðiráðgjafar Capacent. Capacent telur að innistæða sé fyrir 11,7 prósenta hækkun á gengi bréfa í Reitum, 18,9 prósenta hækkun á gengi bréfa í Eik, og 23,8 prósenta hækkun á gengi bréfa í Regin. Snorri Jakobsson, sérfræðingur hjá Capacent, telur að kaup Regins á Fastengi hafi verið mjög arðbær fjárfesting. Sú fjárfesting hefði átt að endurspeglast í genginu en virðist samt ekki hafa gert það. Hann telur að Reginn sé vanmetið félag, en upplýsingagjöf félagsins mætti vera betri. Í skráningarlýsingu Eikar hafi til að mynda birst mjög nákvæmar upplýsingar um eignirnar. „Þar segja þeir nákvæmlega hver fjöldi leigutaka er, á hvaða svæði og hvers konar húsnæði það er,“ segir Snorri.Snorri JakobssonÞessar upplýsingar vanti hjá Regin. „Við metum framtíðarvöxtinn út frá eignasamsetningu og staðsetningu,“ segir Snorri. Hann bætir við að erlendar rannsóknir hafi sýnt að á fasteignamarkaði geti staðsetningin skipt öllu máli, einkum þegar um er að ræða verslunarhúsnæði eða hótel. „Þessar upplýsingar þurfa allar að vera fyrir hendi svo hægt sé að greina eignasafnið betur,“ segir Snorri. Þann 20. desember 2013 var tilkynnt um kaup fasteignafélagsins Eikar á fasteignafélaginu Landfestum og samþykkti Samkeppniseftirlitið kaupin á árinu 2014. Eik var svo skráð á markað í apríl síðastliðnum. Að mati Capacent leið of skammur tími milli kaupanna á Landfestum og skráningar félagsins. „Það er almennt ráðlagt, áður en fyrirtæki fara á markað, að það sé stöðugleiki í rekstri og ekki miklar breytingar svo það sé auðveldara að gera sér grein fyrir framtíðarrekstrinum,“ segir Snorri. Hann bendir á að rekstrarárið 2014 endurspegli engan veginn rekstrarárið 2015. „Hvernig áttu að verðmeta fyrirtækið þegar þú gerir þér enga grein fyrir framtíðarrekstrinum?“ spyr Snorri og bætir því við að ekki sé mælt með því að menn fari í útboð svo snemma eftir að keyptar eru stórar eignir. „Ekki nema að vera með þeim mun betri rekstraráætlun.“
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira