Óhjákvæmilegt að hafa skoðun á menntamálum jón hákon halldórsson skrifar 1. júlí 2015 10:15 Í nýja starfinu mun Ingibjörg starfa við hlið Margrétar Pálu sem er stjórnarformaður Hjallastefnunnar. fréttablaðið/gva
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir var á dögunum ráðin framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar sem rekur 19 grunnskóla og leikskóla í 11 sveitarfélögum. Ingibjörg Ösp var framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar á árunum 2003-2005 og markaðsstjóri KEA frá 2005-2008. Frá árinu 2008 hefur Ingibjörg stýrt Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, fyrst við stefnumótun og undirbúning starfseminnar fyrir hönd Akureyrarbæjar en svo sem framkvæmdastjóri Menningarfélagsins Hofs sem rekur húsið. Ingibjörg Ösp flutti frá Akureyri og suður yfir heiðar í haust þegar yngsta barnið hennar fæddist. Hún hafði ákveðið að tímabært væri að söðla um eftir sjö ára starf fyrir Menningarhúsið Hof þegar starf framkvæmdastjóra Hjallastefnunnar rak á fjörur hennar. Ingibjörg Ösp segir að þótt starfið hjá Hjallastefnunni sé á margan hátt ólíkt þeim störfum sem hún hefur áður sinnt þá sé þar samt ákveðinn samhljómur. „Mennta- og menningarmál eru á margan hátt svo samofin og sömu prinsipp sem gilda um samfélagslega ábyrgð í báðum tilvikum,“ segir Ingibjörg Ösp. Hún segir að reynsla af rekstri Hofs muni nýtast henni í nýja starfinu. Að auki séu menntamál grunnstoð í samfélaginu og sem móðir fimm barna á ólíkum skólastigum hafi verið óhjákvæmilegt fyrir hana að setja sig inn í mál og hafa skoðun á þeim. Hún segist full tilhlökkunar að hefja störf með því góða fólki sem hjá Hjallastefnunni starfi. Ingibjörg Ösp er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri og lauk meistaranámi þaðan í alþjóðaviðskiptum með áherslu á stjórnun og stefnumótun. Hún er alin upp í Eyjafjarðarsveit, er sveitastelpa en ólst þó ekki upp á bóndabæ. Hún er mikið náttúrubarn. „Mér finnst alveg best af öllu að komast heim í sveitina mína.“ Hún ætlar einmitt að fara norður í land í júlí með fjölskyldunni og njóta veðursins í sinni gömlu heimasveit. Ingibjörg Ösp segir að sín helstu áhugamál séu samvera með fjölskyldunni og að sinna verkefnum sem þeim fylgja, en að auki hefur hún áhuga á að ferðast og skoða heiminn. „Og svo eru menningarmálin mér alltaf ansi hugleikin, leikhúsin og tónlistin,“ segir hún og bætir við að hún reyni að fylgjast eins vel með því sem gerist í leikhúsinu og tónlistinni og hún geti. Ingibjörg Ösp er í sambúð með Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarpsstjóra og á hún fimm börn á aldrinum níu mánaða til sautján ára.
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira