Orka HS Orku bundin við álver í Helguvík Kolbeinn Óttarsson Proppe skrifar 6. júlí 2015 09:15 Ásgeir Margeirsson segir að uppi sé ágreiningur um orkusölusamninginn við Norðurál.
Hendur HS Orku eru fremur bundnar þegar kemur að nýtingu virkjanakosta og sölu raforku vegna ágreinings við Norðurál um orkusölusamning vegna álvers í Helguvík. Málið hefur verið í farvegi gerðardóms í tvígang síðan árið 2010. Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, segir fyrirtækið vilja vera þátttakanda í orkufrekum verkefnum, en það geti lítið gert í því meðan beðið er niðurstöðu um gildi Helguvíkursamningsins. „Við viljum að sjálfsögðu selja orku eins og unnt er, Norðuráli eða öðrum, en staðan er sú að HS Orka gerði samning við Norðurál Helguvík um umtalsvert mikla orku og uppi er ágreiningur um þýðingu hans í dag, nú þegar álverið er hvergi nærri byggt og ekki unnt að afhenda orku þangað,“ segir Ásgeir. Orkuverð hefur verið tengt álverði og í orkusölusamningum er ákveðin arðsemiskrafa. Ekki er ljóst hvenær af framkvæmdum Norðuráls í Helguvík verður. Norðurál fór í mál við HS Orku árið 2010 vegna samnings um orku til álvers í Helguvík, en HS Orka taldi skilyrði samningsins ekki hafa verið uppfyllt. Gerðardómur í Svíþjóð úrskurðaði þannig að samningurinn væri í gildi, en skilyrði hans hefðu ekki verið uppfyllt. Þá var kveðið á um ákveðna arðsemi af orkusölunni. „Síðan þá hefur ekki fundist lausn á málinu,“ segir Ásgeir. Á meðan svo er getur fyrirtækið ekki selt öðrum orku sína nema í mjög litlu magni.“ HS Orka fór í mál við Norðurál í júlí í fyrra til þess að fá skorið úr um gildi samningsins. Niðurstöðu gerðardómsins er að vænta sumarið 2016. Orkusölusamningurinn snýst um 150 MW af orku. HS Orka vill losna undan samningnum til að nýta orkuna í annað. Ljóst er að á meðan Norðurál og HS Orka deila um samninginn verður ekki af því og nýting orkunnar er því bundin því að Norðurál geti nýtt hana í Helguvík.
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira