Bjó í Ástralíu og fór á vetrarútsölur í júlí jón hákon halldórsson skrifar 8. júlí 2015 12:00 Davíð Ólafur Ingimarsson
Davíð Ólafur Ingimarsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri hjá GreenQloud. Davíð er með B.Sc. og meistaragráðu í hagfræði og einnig meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja. Að auki er hann löggiltur verðbréfamiðlari. Hann lærði hér heima en fékk rannsóknarstyrk og fór til Japans og Ástralíu. „Það var mjög skrítið að búa í Ástralíu,“ segir Davíð Ólafur. Það hafi allir verið sofandi þegar hann sjálfur var vakandi. „Sérstaklega fannst mér skrítið yfir sumartímann þegar það voru vetrarútsölur í öllum búðum. Í júlí á ekki að vera vetrarútsala. Það er eitthvað rangt við það,“ bætir Davíð við í léttum dúr. GreenQloud er nokkurra ára gamalt íslenskt fyrirtæki. Það er fyrst og fremst hugbúnaðarfyrirtæki og hefur lagt sífellt meiri áherslu á búnað sem heitir Qstat. Það er heildarskýjalausn til að stýra skýjaumhverfum fyrirtækja og sameina kosti sýndarumhverfa, hefðbundinna netþjóna og sjálfvirkni tölvuskýja. Fyrirtækið er því hugbúnaðarfyrirtæki en ekki skýjaþjónusta. „Þetta hefur bara gengið nokkuð vel undanfarið,“ segir Davíð Ólafur og bætir því við að fyrirtækið hafi gert samninga við erlenda og innlenda endursöluaðila. Fjörutíu manns vinna hjá fyrirtækinu, sem er með skrifstofur í Reykjavík og Seattle og fer ört stækkandi. Umhverfið sem Davíð Ólafur kemur úr er töluvert frábrugðið tölvugeiranum. Hann vann hjá Landsvirkjun í átta ár og segist kveðja það fyrirtæki með söknuði. Davíð Ólafur bendir á að allt gerist hraðar í tölvugeiranum en í orkugeiranum. „Verkefni mín eru kannski svipuð að því leytinu til að fjármál eru kannski ekkert að breytast. Hjá Landsvirkjun var ég í erlendri og innlendri fjármögnun, sjóðastýringu og hjá GreenQloud verð ég í fjármögnun. Að passa upp á peningana og sjóðina,“ segir Davíð. Hann bætir því við að það sé því aðallega umhverfið sem breytist en ekki verkefnin. „Nema það er kannski meiri ábyrgð að vera fjármálastjóri.“ Helstu áhugamál Davíðs eru líkamsrækt og útivist og svo kennir hann í Háskóla Íslands. „Kennsla er eitthvað sem ég hef mikinn áhuga á,“ segir Davíð ,en bætir við að maður fari ekki í kennslu í HÍ fyrir peninga. „Ég stofnaði fyrirtæki með vini mínum, Bjarna Ingimar Júlíussyni, og við erum að þróa rafrænar kennslubækur á spjaldtölvur,“ segir Davíð. Upphaflega átti fyrsta útgáfan að koma út í sumar en Davíð segir það allt eins geta breyst vegna nýju vinnunnar.
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Sjá meira