Lífið

Lára Rúnars heldur af stað í tónleikaferð

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir endar tónleikaferðina á Húrra í Reykjavík.
Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir endar tónleikaferðina á Húrra í Reykjavík. vísirgva
„Það er mjög langt síðan ég hef spilað ein á tónleikum, þannig að þetta er pínu skerí. Ég er núna að leita uppruna lagana eins og þau voru saman, þetta er mjög skemmtilegt,“ segir tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir. Á næstu dögum ætlar að halda ferna tónleika.

Fyrst heldur hún á Vestfirði þar sem hún spilar ein og óstudd í anda Act Alone-hátíðarinnar á Suðureyri þar sem hún kemur fram annað kvöld. Í kvöld kemur hún hins vegar fram á Melrakkasetrinu á Súðavík og þá kemur hún fram í Bræðraborg á Ísafirði á laugardagskvöldið 8. ágúst. „Ég ætla að fara yfir ferilinn og spila lög af öllu plötunum,“ segir Lára.

Í byrjun sumars kom út fimmta plata Láru, en sú ber titilinn Þel og er hún bæði draumkennd og ævintýranleg ásamt því að vera fyrsta platan þar sem hún syngur á íslensku og hafa þrjú lög af plötunni nú þegar ratað hátt á vinsældalista Rásar 2.

Lára Rúnars hefur komið víða við á sínum tónlistarferli og muna margir eflaust eftir ævintýri hennar ásamt fleiri tónlistarmönnum um borð í bátnum Húna II sumarið 2013.

Hún ætlar að enda tónleikaferð sína í Reykjavík, því á þriðjudagskvöldið 11. ágúst mun Lára svo koma fram á Húrra ásamt hljómsveit sinni.

Hún hefur undanfarna daga verið að taka upp nýtt tónlistarmyndband við titillag nýjustu plötu sinnar. „Við ætlum að reyna að frumsýna myndbandið á tónleikunum þriðjudaginn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.