Þjónusta sem byggir á reynslu 10. febrúar 2016 16:30 ,,Þjónusta okkar byggir því á langri reynslu af bókhaldsstörfum, launavinnslu, skrifstofu- og fjármálastjórn úr íslensku atvinnulífi undanfarna áratugi,“ segir Már Jóhannsson, framkvæmdastjóri Viðviks bókhaldsþjónustu. MYND/ANTON BRINK MYND/ANTON BRINK
KYNNING - Bókhaldsþjónustan Viðvik ehf. er þjónustufyrirtæki á sviði bókhalds og uppgjörsmála og sinnir jöfnum höndum litlum og stórum fyrirtækjum, húsfélögum, félagasamtökum auk einstaklinga. Að sögn Más Jóhannssonar, framkvæmdastjóra og eiganda Viðviks ehf., byggir bókhaldsþjónustan á gömlum og traustum grunni en upphaflega hét hún Bókhaldsþjónusta Más og var stofnuð árið 1986. „Ég hef starfað í þessari grein síðan árið 1986 og í fullu starfi síðan árið 1989. Þjónusta okkar byggir því á langri reynslu af bókhaldsstörfum, launavinnslu, skrifstofu- og fjármálastjórn úr íslensku atvinnulífi undanfarna áratugi.“ Viðvik ehf. þjónustar allar greinar atvinnulífsins og þjónustan er fjölbreytt. „Við sjáum um hefðbundið bókhald og afstemmingar, jafnóðum á tveggja mánaða fresti eða við ársreiknings- og framtalsgerð. Öll gögn eru send í tölvutæku formi til RSK.“ Starfsmenn Viðviks sjá einnig um greiðslur allra gjalda og launa eftir óskum viðskiptavina með því að koma seðlunum eða skilagreinum í viðskiptabanka fyrirtækis og skuldfæra á reikning þess. „Auk þess sjáum við um innheimtu reikninga fyrir viðskiptavini okkar.“ Sífellt færist í vöxt að fyrirtæki láti Viðvik sjá um launavinnsluna fyrir sig enda felst mikið hagræði í því að sögn Más. „Við sjáum líka um launagreiðslur fyrirtækja sem ekki kaupa bókhaldsþjónustu hjá okkur. Þetta eru oft viðkvæmar upplýsingar og trúnaðarmál innan flestra fyrirtækja. Því finnst mörgum kostur að geta útvistað þessum þætti.“ Öll gögn til lífeyrissjóða og stéttarfélaga og vegna skatta eru send rafrænt. Viðvik sér einnig um gerð skattframtala fyrir einstaklinga, einstaklinga í rekstri og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. „Auk þess sjáum við um ýmis uppgjör og sérverkefni á borð við uppgjör fyrir húsfélög, félagasamtök og trúfélög. Við gerum einnig rekstraráætlanir og veitum rekstrarráðgjöf, t.d. varðandi breytingu rekstrarforms og stofnun fyrirtækja svo eitthvað sé nefnt. Að lokum má nefna uppgjör og skipti dánarbúa, aðstoð vegna fyrirframgreidds arfs sem eru oft viðkvæm mál. Þar erum við miklu ódýrari kostur en lögmaður.“ Í dag starfa hjá fyrirtækinu þrír starfsmenn í fullu starfi allt árið. Endurmenntun er aðalsmerki fyrirtækisins. Allar nánari upplýsingar um þjónustu Viðviks má finna á www.vidvik.is.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira