Allt um vor-og sumartískuna í veglegri Trendhandbók Glamour Ritstjórn skrifar 16. mars 2016 14:30
Þriðja tölublað ársins af Glamour er komið út - tæplega 200 blaðsíður af fjölbreyttu efni. Þar á meðan sérstakur leiðarvísir um strauma og stefnur vor-og sumartískunnar - en bjartari tímar eru sem betur fer handan við hornið. Eitt heitasta trend ársins er persónulegur stíll og má greina það í forsíðuþættinum sem Silja Magg tók út í New York með fyrirsætunum Victoriu Brito og Chloe Norgaard, sem svo sannarlega fanga þennan stíl með stæl. Stílisti er Jessica Bobince en þetta er í annað sinn sem hún stíliserar fyrir íslenska Glamour. Ásamt veglegri trendhandbók í blaðinu er einnig að finna fróðlega umfjöllun um ófrjósemi þar sem kvenjúkdóma - og fæðingarlæknirinn Ingunn Jónsdóttir er tekin tali en hún er ein af aðstandendum IVF kliníkarinnar sem nýverið opnaði hér á landi. Eitt af hverjum sex pörum í heiminum glíma við vandamál tengdum ófrjósemi og kallar Ingunn meðal annars eftir vitundarvakningu meðal kvenna um frjósemisskeið sitt - og veltir meðal annars fyrir sér spurningunni hvort konur fresti barneignum of lengi í dag? Allt sem þú þarft að vita um húðina, hönnuðir deila sínum uppáhaldshornum á heimilinu og fastir dálkar á sínum stað. Fróðlegt og fjölbreytt blað komið í verslanir! Komdu í hóp frábærra áskrifenda hér. Stóra trendblaðið okkar er komið út! Tæpar 200 blaðsíður - leiðarvísir um vor-og sumartískuna, 4 myndaþættir, veglegur förðunarkafli, fróðlegar umfjallanir og margt margt margt fleira Mynd: @siljamagg Stílisti: @jessicabobince Fyrirsætur: @vickatrillion og @chloenorgaard Ekki missa af þessari snilld ! #glamouriceland A photo posted by Glamour Iceland (@glamouriceland) on Mar 16, 2016 at 5:23am PDT
Mest lesið Förðunarmyndband: Einföld en fín förðun skref fyrir skref Glamour Best klæddu karlmenn vikunnar Glamour Gigi Hadid prýðir forsíðu fyrsta tölublaðs Vogue Arabia Glamour Nýtt trend fyrir haustið - baktöskur Glamour Kourtney Kardashian í JÖR Glamour Veittu ósöluhæfum fatnaði nýtt líf Glamour 14 ráð í átt að umhverfisvænni lífstíl Glamour Svarthvítar hetjur Dior Glamour Pallettan sem allir hafa beðið eftir Glamour Naomi Campell situr fyrir í Puma-línu Rihönna Glamour