Indiana Jones snýr aftur sumarið 2019 Bjarki Ármannsson skrifar 15. mars 2016 18:36 Hattinum, jakkanum og svipunni mun sennilega öllum bregða fyrir í nýju myndinni. Vísir/Getty
Disney greindi frá því í dag að þekktasti fornleifafræðingur kvikmyndasögunnar, Indiana Jones, mun birtast á silfurtjaldinu sumarið 2019. Til stendur að gera fimmtu myndina um kappann og mun Harrison Ford snúa aftur sem Jones og Steven Spielberg leikstýra myndinni, líkt og hinum fjórum. Kvikmyndirnar um Indiana Jones hafa halað inn hátt í tveimur milljörðum Bandaríkjadala, eða um 250 milljörðum íslenskra króna, um heim allan. Fyrsta myndin, Raiders of the Lost Ark, kom út árið 1981 og sú síðasta, Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull, árið 2008 eftir langt hlé á kvikmyndabálknum. Ný mynd um Jones hefur lengi verið í deiglunni en Spielberg sagði í desember síðastliðnum að það kæmi ekki til greina að nokkur annar en Ford færi með hlutverk kappans.Hér fyrir neðan eru 25 eftirminnilegar línur úr Indiana Jones myndunum rifjaðar upp.
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Terry Reid látinn Lífið Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Fleiri fréttir Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira