Bílar

F-Sport upplifun hjá Lexus

Finnur Thorlacius skrifar
Lexus RC300h.
Lexus RC300h.
Lexus Ísland verður með sýningu í Kauptúni, Garðabæ laugardaginn 30. apríl frá kl. 12 – 16 þar sem hinn glæsilegi sportbíll, RC 300h verður frumsýndur. Einnig verður Lexuslínan sýnd í F-Sport útfærslu.

Skarpar línur hafa einkennt hönnun Lexus að undanförnu og er óhætt að segja að þeir veki óskipta athygli í umferðinni. Í F-Sport útfærslum er hönnunin og búnaður bílanna tekin einu skrefi lengra. Þeir þekkjast á ágengu snældulaga grilli og fallega hönnuðum felgum fyrir „low-profile“dekkin. F-Sport gerðirnar er búnar sérstökum sætum og öðrum búnaði sem tryggja eftirminnilega akstursupplifun.

Boðið verður upp á reynsluakstur á F-Sport útfærslum á RC 300h, IS 300h, NX 300h, GS 450h og RX 450h. F í F-Sport vísar til Fuji kappakstursbrautarinnar í Japan sem notuð er við prófanir á Lexus F-Sport útfærslunum.






×