Bílar

Hægt að reynsluaka Opel á Simply Red

Finnur Thorlacius skrifar
Opel Astra.
Opel Astra.
Bílabúð Benna stendur fyrir reynsluakstursleiknum Simply Red Astra til 30. maí. Í tilkynningu frá Bílabúð Benna kemur fram að þeir sem reynsluaki Bíl ársins, Opel Astra, eða öðrum bíl úr Opel fjölskyldunni, fram til 30. maí, komist í verðlaunapott og geti unnið miða á stórtónleika Simply Red í Laugardalshöll 31. maí og málsverð fyrir tvo á Kol Restaurant.

Þeir sem vilja kynnast gæðabílum og freista gæfunnar í leiðinni eru hvattir til að koma í sýningarsal Opel í Tangarhöfða 8 eða Njarðarbraut 9 Reykjanesbæ og reynsluaka Opel. Vinningar, fjórir miðar á tónleika Simply Red og málsverður á Kol Restaurant, verða dregnir út 30. maí og vinninghafar látnir vita.






×