Þar með lauk hún meistaranámi í faginu en Ugla hefur áður getið af sér gott orð sem handritshöfundur stuttmyndarinnar Milk and Blood sem sýnd var á Slamdance kvikmyndahátíðinni árið 2014.

Nýju myndina How Far She Went vann hún með handritshöfundinum og kvikmyndaframleiðandanum Chloe Lenihan. Myndin er 13 mínútur að lengd og er gerð eftir smásögu Flannery O‘Connor um tregafullt samband ömmu og barnabarns hennar.
Þrátt fyrir ungan aldur á Ugla fjölda stuttmynda að baki en þar má helst nefna myndina Salt frá 2014 sem tilnefnd var til ferna verðlauna á kvikmyndahátíðum á Íslandi og í Bandaríkjunum. Árið 2014 hlaut hún David Jones minningarstyrkinn þar sem hún þótti efnilegasti leikstjóri skólans.
Hér fyrir neðan má sjá myndband þar sem Ugla og framleiðandinn tala um gerð nýju myndarinnar.