Radiohead hefur verið starfandi frá árinu 1985, gefið út níu plötur og unnið til allra mögulegra verðlauna sem hægt er að í
mynda sér. Lagalisti hljómsveitarinn er langur og því kannski ekki auðvelt að gera sér í hugarlund hvað verði á boðstólnum á morgun. Taka þeir Creep? Fá áhorfendur að syngja með í Karma Police? Mun taktfastur teknóhljómur Idioteque sprengja hljóðkerfið í Laugardalshöll?
Sjá einnig: Þegar Radiohead hélt bestu tónleika sögunnar
Blessunarlega er hægt að fá ákveðin svör við því hverju megi búast á morgun. Hljómsveitin hefur nú þegar haldið níu tónleika á tónleikaför sinni um Evrópu til þess að kynna A Moon Shaped Pool, nýjustu breiðskífu sveitarinnar sem kom út í síðasta mánuði.
Þegar lagaval hljómsveitarinnar er skoðað á þessum tónleikum stendur ýmislegt upp úr.

Á þeim níu tónleikum sem Radiohead hefur haldið það sem af er ári hefur sveitin ávallt opnað tónleikana á sömu fimm lögunum í sömu röð.
Burn the Witch
Daydreaming
Decks Dark
Desert Island Disk
Ful Stop
Þetta eru fyrstu fimm lögin á nýju plötu og Radiohead rúllar þeim út í byrjun. Eins og gefur að skilja hafa lög af A Moon Shaped Pool, nýjustu plötunni, verið með yfirhöndina á tónleikum Radiohead það sem af er ári og hefur sveitin verið að spila sex til níu lög af plötunni.
Eftir að lögin fimm eru afstaðin færa þeir sig yfir í tónlistarlegt ferðalag um feril sveitarinnar þar sem lög af öllum plötum sveitarinnar, og meira að segja nokkrar B-hliðar, eru viðruð.
Til gamans tók Vísir saman örlitla tölfræði um tónleikaferð Radiohead það sem af er ári. Hér má sjá fjölda þeirra laga sem hljómsveitin tekur á hverjum tónleikum, sundurliðuð eftir plötunum.
Tónleikagestir ættu að geta hlakkað til að heyra Paranoid Android en það hefur, frá því lagið kom út árið 1997, verið eitt af aðalnúmerum sveitarinnar á tónleikum. Á núverandi tónleikaferð hefur lagið fengið að hljóma í sex af níu skiptum og hvaða tölfræðingur sem er ætti því að geta sagt að góðar líkur séu á því að þetta ofboðslega rafmagnaða lag heyrist í Laugardalnum á morgun.
Sjá einnig: Sjáðu Radiohead taka Creep í fyrsta skipti á tónleikum í sjö ár
En, Thom Yorke er mikið ólíkindatól og þegar vel liggur á honum gerast ótrúlegir hlutir og svo virðist vera sem að Yorke og félagar hans í Radiohead séu í nokkuð góðum gír á tónleikaferðalaginu það sem af er.
Radiohead-tónleikar eru mikil upplifun. Hljómsveitin leggur mikið upp úr sjónrænum áhrifum og ferðast yfirleitt með mikinn búnað með sér. Þetta má glöggt sjá á myndböndum af tónleikum sveitarinnar.
Hljómsveitin er einnig gríðarlega þétt og þaulvön enda voru Sovétríkin ennþá til þegar Radiohead steig fyrst á stokk, þá sem On A Friday (önnur saga). Þeir eru einnig óhræddir við að setja lög sín í algjörlega nýjan búning frá því sem heyra má á plötum sveitarinnar.
„Radiohead sound like a band out on their own in more than one sense. It’s not just that no current rock artist of comparable size is making music as exploratory and exciting as this. It’s that, in a world where lengthy careers are usually marked by slow decline, they seem remarkably like a band reaching an artistic peak nearly 25 years after their commercial breakthrough.“
Tónleikar Radiohead hefjast klukkan 21.30 á morgun, 17. júní, í Laugardalshöll. Góða skemmtun.