Bílar

Snorri sigurvegari torfærunnar á Akranesi

Finnur Thorlacius skrifar
Sigurvegari keppninnar, Snorri Þór Árnason í mikilli drullu en lætur hér gamminn geysa.
Sigurvegari keppninnar, Snorri Þór Árnason í mikilli drullu en lætur hér gamminn geysa. Gunnlaugur Einar Briem
Önnur umferð Íslandsmeistamótsins í torfæru var haldin í nýju akstursssvæði á Akranesi um helgina. Tuttugu keppendur voru skráðir til leiks en 18 hófu keppni. Keppendur sýndu mikil tilþrif og baráttan um fyrsta sætið var hörð, brautirnar voru krefjandi og reyndi mikið á bílana, sem og ökumenn. 

Sigurvegari keppninnar nú um helgina var Snorri Þór Árnason og Guðmundur Ingi Arnarsson hafnaði í öðru sæti þrátt fyrir að vera nýliði og í sinni annari keppni. Sigurvegari í götubílaflokki var Skúli Kristjánsson. Mikið var um veltur og mikil drulla var auk þess í brautunum sem ollu miklum töfum.

Næsta keppni fer fram á Egilsstöðum þann 2. júlí.

Guðmundur Ingi Arnarsson hafnaði í öðru sæti þrátt fyrir að vera nýliði og í sinni annari keppni.Gunnlaugur Einar Briem
Mikið gékk á í fjórðu braut og hér er Haukur Viðar Einarsson á fullri ferð.Gunnlaugur Einar Briem
Mikið var um veltur og tilþrif og hér er Alexander Már Steinarsson að taka eina veltuna.Gunnlaugur Einar Briem





×