Ný Lara Croft kynnt til leiks Ritstjórn skrifar 11. júlí 2016 11:30
Síðasta vor var sænska leikkonan Alicia Vikander sögð taka við hlutverki Löru Croft, sem Angelina Jolie svo eftirminnilega fór með í fyrstu tveimur myndunum um töffarann Croft. Nú hafa framleiðendur þriðju Tom Raider myndarinnar, MGM og Warner Bros, staðfest Vikander í hlutverkinu og sömuleiðis frumsýningardagsetningu myndarinnar sem verður í mars 2018. Vikander tekur sig vel út í búningi Croft en hún vann Óskarinn á þessu ári fyrir hlutverk sitt í The Danish Girl. Það verður spennandi að fylgjast með sænsku leikkonunni feta í fótspor Jolie en fyrsta myndin af henni í karakter lofar svo sannarlega góðu. Tölvuleikurinn Tomb Raider með Löru Croft sló í gegn þegar hann kom fyrst út árið 1996 og seldist í 45 milljónum eintaka út um allan heim. Fyrstu tvær myndirnar með Angelinu Jolie komu út 2001 og 2003 og voru mjög vinsælar. Alicia Vikander sem Lara Croft.
Mest lesið Gucci hættir að nota alvöru loð Glamour Að taka stökkið Glamour Smekkbuxur fyrir karlmenn Glamour Englahár og aðrar öðruvísi hárgreiðslur Glamour Poppum upp kampavínslitinn Glamour Berum á okkur andlitsmaska Glamour Að verða móðir gjörbreytir lífinu og sjálfsmyndinni Glamour Situr fyrir í íbúð Coco Chanel Glamour Í 100 þúsund króna krumpugalla Glamour Beyonce kom, sá og sigraði Super Bowl Glamour