Sjónvarpsmynd um líf Britney Spears í vinnslu Ritstjórn skrifar 25. ágúst 2016 13:45 Britney og Justin Timberlake voru, eins og flestir vita, eitt ástsælasta par heims á sínum tíma. Myndir/Getty
Til stendur að gera sjónvarpsmynd um ævi söngkonunnar Britney Spears. Hún hefur svo sannarlega gengið í gegnum margt á seinustu 17 árum og er því af nógu að taka. Búist er við því að myndin verði frumsýnd á næsta ári. Fjallað verður um uppruna söngkonunnar í Louisiana-fylkinu allt til dagsins í dag. Kafað verður drúpt í fyrrum sambönd og hjónabönd hennar, þá sérstaklega við söngvarann Justin Timberlake. Þau voru eitt ástsælasta par heims í byrjun 21.aldarinnar eins og frægt er. Þau hættu saman vegna þess að talið er að Britney hafi haldið framhjá honum með einum af dönsurunum sínum. Einnig verður fjallað um móðurhlutverkið og þegar hún féll í heim eiturlyfja og fékk taugaáfall. Unga leikkonan Natasha Bassett hefur verið ráðin til þess að leika Britney í myndinni. Á morgun kemur út níunda breiðskífa Britney sem heitir "Glory" og hún mun einnig koma fram á VMA verðlaunahátíðinni á sunnudaginn. Leikkonan Natasha Bassett hefur verið ráðin til þess að leika Britney í sjónvarpsmyndinni.Eftirminnilegasta dressið hjá þessu glæsilega pari.
Mest lesið Lærðu að farða þig eins og Adele Glamour 16 hlutir sem bara besta vinkona þín myndi segja þér um óléttu og fæðingar Glamour Adidas hefur selt yfir 50 milljón pör af Stan Smith skóm Glamour Vel skóuð inn í veturinn Glamour Hedi Slimane kveður Saint Laurent Glamour Veldu þínar uppáhaldssnyrtivörur Glamour Serena Williams situr fyrir í Sports Illustrated Glamour Kraftgallinn er kominn aftur Glamour „Eins og að vera í öskubuskuævintýri“ Glamour Lily-Rose Depp nýtt andlit Chanel Glamour