Audi Q7 e-tron frumsýndur Finnur Thorlacius skrifar 15. september 2016 11:53 Audi Q7 e-tron er mættur á klakann.
Mikil eftirvænting hefur verið eftir frumkvöðlinum Audi Q7 e-tron quattro. Þessi fyrsti fjórhjóladrifni dísiltengiltvinnbíll heims er kyndilberi nýrrar tækni og verður frumsýndur næstkomandi laugardag hjá HEKLU Laugavegi milli kl. 12 og 16. Hann sameinar krafta rafmagnsmótors og dísilvélar, er sparneytinn, vistvænn og setur hreinlega ný viðmið í tækninýjungum. „Eftirspurnin eftir hinum nýja Audi Q7 e-tron hefur verið mjög mikil og á þriðja tug bíla voru pantaðir fyrirfram hér á landi óséðir, enda hefur hann fengið mjög góða dóma um heim allan,“ segir Jóhann Ingi Magnússon sölustjóri Audi. „Eitt það áhugaverðasta við Q7 e-tron er hvernig tvinnkerfið stjórnar akstursstillingunum á snjallan hátt. Rafmagnsstillingin setur rafakstur í forgang, en í tvinnstillingu ákveður tvinnkerfið hvaða akstursmáti hentar hverju sinni. Í sparnaðarstillingu er tiltæk orka geymd til notkunar síðar. Ef áfangastaður er valinn í leiðsögukerfi velur bíllinn sjálfvirkt hagkvæmustu akstursstillingu sem nýtir drægni á rafmagni sem best. Q7 e-tron er klárlega einn af áhugaverðustu bílunum á markaðinum í dag.“ Vistvænir kostir þessa kraftmikla jeppa eru hluti af aðdráttarafli hans enda þurfa umhverfisvænir eiginleikar og yfirburðaafl ekki að vera aðskildir þættir. Audi Q7 e-tron quattro fer úr kyrrstöðu í 100 km/klst á 6,2 sekúndum og eldsneytisnotkunin er minni en tveir lítrar af dísil á hverja 100 km. Að auki eru tengiltvinnbílar hagstætt tollaðir um þessar mundir, eða í núll-tollflokki, en með því er verið að hvetja bíleigendur til að leggja sitt af mörkum til umhverfisverndar. Bíllinn hefur fengið feykilega góða dóma bæði erlendis og hjá þeim íslensku bílablaðamönnum sem hafa prufukeyrt hann. Finnur Thorlacius, bílablaðamaður 365 miðla sagði þannig að Audi Q7 e-tron væri „í senn einn þægilegasti bíll sem ökumaður hefur reynt, með allra öflugustu jeppum, frábærlega búinn, að ógleymdri fáránlega lítilli eyðslu hans.“ Jón Agnar Ólason, bílablaðamaður Morgunblaðsins sagði: „Þessi jeppi hefur nánast allt til að bera sem þú getur óskað þér í bíl, á verði sem er einstaklega hagstætt miðað við hvað þú færð fyrir peninginn.“ Audi Q7 e-tron quattro kostar frá kr. 11.390.000 og verður frumsýndur hjá HEKLU Laugavegi laugardaginn 17. september milli klukkan 12 og 16.
Mest lesið „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Innlent Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Innlent Ræddi við foreldra og hætta við miklar hækkanir Innlent Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Innlent Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður Erlent Viðbragð lögreglu og sjúkraflutningamanna í nágrenni Selfoss Innlent Vance átti í skoðanaskiptum við hægri hönd páfans Erlent „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ Innlent Bjóst ekki við að ríkisstjórnin héldi meirihluta Innlent Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Innlent