Ranieri með myndir af öllum hinum stjórunum í ensku úrvalsdeildinni á skrifstofunni sinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. september 2016 13:45 Ranieri er mikill herramaður. vísir/getty
Gary Lineker, fyrrverandi landsliðsframherji Englands og núverandi þáttastjórnandi Match of the Day, tók hús á Claudio Ranieri, knattspyrnustjóra Leicester City í dag. Lineker kíkti inn á skrifstofu hjá Ítalanum og við honum blöstu myndir af hinum 19 knattspyrnustjórunum í ensku úrvalsdeildinni. Lineker birti mynd af þessum skemmtilega myndavegg á Instagram í dag og spurði hvaða stjóri yrði fyrstur til að vera tekinn niður af veggnum. Samkvæmt veðbönkum er landi Ranieris, Francesco Guidolin, stjóri Swansea City, líklegastur til að missa starfið sitt. Næstir á blaði koma Slaven Bilic, stjóri West Ham, og Mark Hughes, stjóri Stoke City. Englandsmeistarar Leicester ekki farið vel af stað á tímabilinu og tapað þremur af fyrstu sex deildarleikjum sínum. Þeir unnu þó góðan sigur í fyrsta leik sínum í Meistaradeild Evrópu og mæta Porto á heimavelli í næsta leik sínum í keppninni á morgun. Lineker er uppalinn hjá Leicester og sló í gegn hjá félaginu áður en hann var seldur til Everton. Þaðan fór hann til Barcelona, þá Tottenham Hotspur og loks til Japans þar sem hann lauk ferlinum. Lineker hafði miklar efasemdir um Ranieri þegar hann var ráðinn til Leicester en það er óhætt að segja að Ítalinn hafi unnið hann á sitt band á síðasta tímabili. Sem frægt er kom Leicester öllum á óvart og vann Englandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins. In Claudio Ranieri's office and he's got pics of all the PL managers. First one off the wall? A photo posted by Gary Lineker (@garylineker) on Sep 26, 2016 at 5:18am PDT
Enski boltinn Mest lesið Utan vallar: Karl, trans eða einfaldlega kona? Sport Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti Sló 30 ára gamalt Íslandsmet Sport Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Tveir fluttir á sjúkrahús eftir harkalegt slys Sport Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Enski boltinn Vann troðslukeppnina með látum Körfubolti KSÍ dregur úr verðhækkunum Íslenski boltinn Grátlegt hjá Íslendingaliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Sjá meira