Jóhann Berg fékk dæmt á sig víti í tapi Burnley | Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. október 2016 17:00
Burnley-menn bíða enn eftir fyrsta stigi sínu á útivelli á tímabilinu en nýliðarnir töpuðu 3-1 á móti Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Southampton-liðið fékk aðeins tvö stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum en er nú komið á skrið. Southampton hefur fengið 10 stig af 12 mögulegum í síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley og fékk dæmda á sig vítaspyrnu á 66. mínútu. Jóhann Berg var tekinn af velli aðeins fjórum mínútum síðar. Það var strangur dómur að dæma á Jóhann Berg sem átti að hafa farið aftan í varamanninn Sam McQueen. Charlie Austin skoraði af öryggi úr vítaspyrnunni og kom Southampton í 3-0. Southampton skoraði öll þrjú mörkin sín á fjórtán mínútna kafla frá 52. til 66. mínútu en Austin skoraði tvö þeirra. Charlie Austin skoraði það fyrsta af stuttu færi á 52. mínútu og Nathan Redmond bætti við öðru átta mínútum síðar. Vítið kom síðan á 66. mínútu en Sam Vokes minnkaði muninn úr víti á 72. mínútu. Charlie Austin hefur nú skorað fjögur mörk í síðustu fjórum deildarleikjum sínum og Southampton hefur unnið þrjá þeirra og ekki tapað neinum. Burnley hefur tapað öllum þremur útileikjum sínum á leiktíðinni og markatalan í þeim er -8 (1-9). Öll sjö stig Burnley-liðsins hafa komið í hús á heimavelli. Southampton komst upp í áttunda sæti með þessum sigri en Burnley er í 14. sætinu.
Enski boltinn Mest lesið Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Mark dæmt af Orra á Bernabéu Fótbolti Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Sport Hlé á keppni eftir að Jón Erik þeyttist út í vegg Sport Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Of seinn til að sjást í mynd: „Þetta er bara á allt of lágu plani“ Körfubolti Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Enski boltinn Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Fótbolti Fleiri fréttir „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Sjá meira