Southgate kemur Smalling og Shaw til varnar eftir ummæli Mourinho Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. nóvember 2016 11:30 Chris Smalling og Luke Shaw eru meiddir. vísir/getty
Gareth Southgate, bráðabirgðastjóri enska landsliðsins í fótbolta, kom Chris Smalling og Luke Shaw, leikmönnum Manchester United, til varnar eftir gagnrýni José Mourinho, knattspyrnustjóra United, í þeirra garð. Mourinho efaðist um vilja varnarmannanna til að leggja allt í sölurnar fyrir Manchester United eftir að þeir misstu af 3-1 sigurleiknum gegn Swansea á sunnudaginn vegna meiðsla. Smalling er meiddur á fæti en Shaw spilaði á móti Fenerbache á útivelli í Evrópudeildinni síðastliðinn fimmtudag. Southgate sagði á blaðamannafundi í gær að augljóslega væru einhver meiðsli að trufla þá báða. Hvorki Smalling né Shaw voru valdir í enska liðið sem mætir Skotlandi í undankeppni HM 2018 á föstudaginn og Spáni í vináttuleik í næstu viku. „Menn verða að gera allt fyrir liðið. Það er munur á hugrökkum leikmönnum, sem gera allt fyrir liðið, og þeirra sem kvarta yfir minnsta sársauka,“ sagði Mourinho um Smalling og Shaw eftir leikinn gegn Swansea en Southgate varði enska tvíeykið í gær. Aðspurður hvort þeir væru ekki traustir karakterar svaraði enski landsliðsþjálfarinn: „Það finnst mér ekki. Luke þekki ég mjög vel og hann er að koma til baka eftir mjög erfið meiðsli. Það er oft auðvelt að dæma menn þegar þú þekkir þá ekki nógu vel.“
Enski boltinn Tengdar fréttir Mourinho gagnrýndi meidda leikmenn United Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, var ekki sáttur við að Chris Smalling og Luke Shaw skildu ekki hafa spilað gegn Swansea vegna meiðsla. 7. nóvember 2016 12:00 Mest lesið Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Sport Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Íslenski boltinn Ólympíufarar notuðu yfir tvo smokka á dag Sport Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Enski boltinn „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Körfubolti Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Handbolti Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Enski boltinn Hlé á keppni eftir að Jón Erik þeyttist út í vegg Sport Dagskráin í dag: Enski bikarinn á sviðið Sport Fleiri fréttir Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Sjá meira
Mourinho gagnrýndi meidda leikmenn United Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, var ekki sáttur við að Chris Smalling og Luke Shaw skildu ekki hafa spilað gegn Swansea vegna meiðsla. 7. nóvember 2016 12:00