Audi hættir við 420 hestafla 2,0 lítra vélina Finnur Thorlacius skrifar 2. nóvember 2016 10:30 Audi TT RS átti að fá þessa öflugu vél.
Audi sýndi árið 2014 TT Quattro Sport Concept tilraunabíl og var hann með hreint ótrúlegt afl miðað við lítið sprengirými vélarinnar í bílnum. Þessi vél er fjögurra strokka og með 2,0 lítra sprengirými, en samt sem áður kreisti Audi 420 hestöfl úr henni. Meiningin var að nota þessa vél í nokkra bíla innan stóru Volkswagen bílafjölskyldunnar, en nú hefur Audi tekið þá ákvörðun að hætta við framleiðslu þessarar vélar. Það var Friedrich Eichler, fyrrum vélarhönnuður hjá AMG sportbíladeild Mercedes Benz sem þróaði þessa vél, sem og EA888 2,5 lítra og 400 hestafla vélina frá Audi. Til stóð að framleiða báðar þessar vélar í aflmiklar útgáfur Audi bíla, en dísilvélasvindl Volkswagen hefur gert það að verkum að hætt hefur verið við þróun þeirra bíla og véla sem ekki teljast nauðsynleg fyrir Volkswagen bílasamstæðuna. Hin öfluga fjögurra strokka 2,0 lítra vél sem nú hefur orðið fyrir niðurskurðarhnífnum dugði til að koma Audi TT RS í 100 km hraða á litlum 3,7 sekúndum. Hámarkstog hennar náðist milli 2.400 og 6.300 snúningum og mesta afl við 6.700 snúninga. Ókosturinn við þessa vél er hinsvegar sá að hún er dýr í framleiðslu og því fór sem fór. Líklegt er talið að ný 2,9 lítra V6 vélin sem hönnuð er sameiginlega af Porsche og Audi og skilar 440 hestöflum verði ofaná í bílum Volkswagen bílafjölskyldunnar sem krefjast mikils afls. Litla fjögurra strokka vélin hefði þó verið miklu léttari, en með hátt í sama afl og fyrir vikið hefðu aksturseiginleikar orðið líklega betri með henni.
Mest lesið Segir þaggað niður í starfsfólki og hyggst ekki snúa aftur Innlent Sonurinn sefur enn með kylfu undir rúminu Innlent „Versta martröð Trumps“ kjörin borgarstjóri New York Erlent Féll til jarðar rétt eftir flugtak Erlent Fundu 1,7 tonn af kókaíni í kafbát á miðju Atlantshafi Erlent Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Innlent Íslenskum fulltrúum á loftslagsráðstefnu hríðfækkar milli ára Innlent Tali ekki fyrir unga Miðflokksmenn Innlent Sjö látnir eftir flugslysið í Kentucky Erlent Stofnar Facebook hóp fyrir hatur gegn sjálfum sér Erlent
Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Innlent
Lokunardagar leikskóla í Reykjavík tíu sinnum algengari en í öðrum stórum sveitarfélögum Innlent