Mourinho: Ég nýt ekki virðingar Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. nóvember 2016 15:30 José Mourinho vill virðingu. vísir/getty
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, kallar eftir meiri virðingu í sinn garð fyrir það sem hann hefur afrekað í ensku úrvalsdeildinni. Hann vill njóta sömu virðingar og Arsene Wenger nýtur hjá breskum blaðamönnum, að hans mati. Mourinho og Wenger mætast í hádeginu á morgun þegar Manchester United og Arsenal keyra ensku úrvalsdeildina af stað með stórleik eftir landsleikjahlé. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Portúgalinn er undir pressu þar sem úrslitin hafa ekki fallið með honum en United-liðið er nú þegar átta stigum á eftir efstu liðum í baráttunni um enska meistaratitilinn. Stór hluti upphitunar fyrir leikinn hjá breskum blöðum fjallar um ríginn á milli Mourinho og Wengers sem eru engir vinir. Honum finnst Frakkinn njóta mun meiri virðingar hjá blaðamönnum. „Sir Alex er ekki í deildinni lengur og á morgun erum við að tala um sex eða sjö Englandsmeistaratitla,“ sagði Mourino á blaðamannafundi sínum fyrir leikinn í dag. „Ég hef unnið þrjá og herra Wenger þrjá eða fjóra. Við erum að tala um þá tvo stjóra sem hafa unnið flesta titla í deildinni. Þýðir það ekki að við eigum að njóta virðingar þó úrslitin séu ekki þau bestu þessa stundina? Ég tel herra Wenger njóta meiri virðingar hjá ykkur.“ „Ég nýt ekki virðingar sem er skrýtið því síðasti titill minn í ensku úrvalsdeildinni vannst fyrir 18 mánuðum en ekki 18 árum. Mér finnst ég ekki njóta virðingar,“ sagði José Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið „Það var eins og við værum á heimavelli“ Sport „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Körfubolti Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Enski boltinn Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Fótbolti Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Handbolti Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Íslenski boltinn Brottvísun af ÓL stendur: Áfrýjun Úkraínumannsins vísað frá Sport Dramatík í Suðurnesjaslag Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Enski bikarinn á sviðið Sport Elín Klara með sex mörk í mikilvægum sigri Handbolti Fleiri fréttir Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ Sjá meira