„Margar ástæður fyrir vandamálum enska landsliðsins“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. nóvember 2016 17:30 Enskir svekktir eftir tapið gegn Íslandi. vísir/getty
Gary Neville, fyrrverandi landsliðsmaður Englands í fótbolta, var beðinn um að greina vandamál enska landsliðsins þegar hann svaraði spurningum háskólanema í Oxford á opnum fundi í gær. Neville spilaði lengi með enska liðinu á tíma sínum hjá Manchester United en náði aldrei neinum árangri með landsliðinu. England hefur ekkert unnið síðan það varð heimsmeistari árið 1966. Oftast er liðið bara ein vonbrigði eins og í sumar þegar það var sent heim af Íslendingum af EM. „Ég fór á átta stórmót með Englandi. Ég segi það ekki með hroka, ég ætti frekar að skammast mín. Það eru margar ástæður fyrir vandamálum enska landsliðsins. Það að við erum ekki nógu góðir er ein. Stundum er maður bara ekki nógu góður,“ sagði Neville við háskólanemana, en Daily Mail greinir frá. „Önnur ástæða er sú að ekki nema 32 prósent af leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar eru Englendingar. Þessi tala er í 50 prósentum í Þýskalandi og á Spáni. Það er ýmislegt sem kemur í veg fyrir að ungir enskir strákar geti orðið fótboltamenn. Það er til dæmis dýrt að fara á leiki og að kaupa sjónvarpsáskriftir. Ég man þegar ég fór á völlinn í hverri viku. Það er frábært að læra með því að horfa,“ sagði neville. Landsliðsbakvörðurinn fyrrverandi bendir líka á að aðstöðuleysi hrjáir ensku grasrótina og færri foreldrar leyfa börnunum að spila fótbolta á götum úti. „Í hverju þorpi eða hverfi á Spáni er aðstaða fyrir börn að spila fótbolta. Það eru margar ástæður fyrir okkar vandamálum. Við eigum mest af peningum en stundum stýrir þessi peningur okkur í ranga átt,“ sagði Gary Neville.
Enski boltinn Tengdar fréttir Gary Neville stillir upp besta byrjunarliði United: Enginn Zlatan né Rooney Fyrrverandi fyrirliði Manchester United er hvorki með sænska markahrókinn né fyrirliðann í liðinu. 15. nóvember 2016 10:45 Neville um brotthvarf Sir Alex: Eins og þegar pabbinn fer og enginn hlustar á stjúpföðurinn Fyrrverandi fyrirliði Manchester United reynir að útskýra hvað gerðist þegar Skotinn hætti á Old Trafford. 15. nóvember 2016 13:00 Mest lesið „Það var eins og við værum á heimavelli“ Sport „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Körfubolti Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Enski boltinn Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Fótbolti Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Handbolti Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Íslenski boltinn Brottvísun af ÓL stendur: Áfrýjun Úkraínumannsins vísað frá Sport Dramatík í Suðurnesjaslag Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Enski bikarinn á sviðið Sport Elín Klara með sex mörk í mikilvægum sigri Handbolti Fleiri fréttir Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ Sjá meira
Gary Neville stillir upp besta byrjunarliði United: Enginn Zlatan né Rooney Fyrrverandi fyrirliði Manchester United er hvorki með sænska markahrókinn né fyrirliðann í liðinu. 15. nóvember 2016 10:45
Neville um brotthvarf Sir Alex: Eins og þegar pabbinn fer og enginn hlustar á stjúpföðurinn Fyrrverandi fyrirliði Manchester United reynir að útskýra hvað gerðist þegar Skotinn hætti á Old Trafford. 15. nóvember 2016 13:00