Sir Alex henti Bruce, Pallister, Irwin og Robson: „Ég var ekki faðir þeirra heldur stjóri“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. nóvember 2016 13:30 Sæll, Bryan. Þú mátt fara núna. Takk fyrir allt. vísir/getty
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, viðurkennir að hann átti erfitt með að losa sig við nokkrar af hetjunum úr United-liðinu árið 1994 sem voru þá búnir að vinna tvo Englandsmeistaratitla fyrir félagið. Bryan Robson, einn dáðasti leikmaður í sögu Manchester United, var losaður en Ferguson var þá búinn að kaupa Roy Keane frá Nottingham Forest til að hressa upp á United-liðið. Ferguson hefur ávallt fengið mikið lof fyrir að búa til hvert meistaraliðið á fætur öðru með því að losa leikmenn á réttum tíma. Suma þeirra var þó erfiðara að senda á brott en aðra.Sjá einnig:Sir Alex opnar sig um hárþurrkuna: „Ég stjórnaði ekki með ótta“ „Þrír eða fjórir leikmenn urðu gamlir á sama tíma,“ sagði Sir Alex á viðskiptaráðstefnu í Mílanó þar sem hann talaði opinskátt um stjóratíð sína hjá Manchester United. Enska blaðið The Sun var á staðnum og hefur verið að skrifa fréttir upp úr svörum Sir Alex í dag. „Ég varð að muna það, að ég var knattspyrnustjóri Manchester United en ekki faðir þeirra. Ég varð að segja þeim að þeirra tími væri kominn. Það var samt mjög erfitt að losa sig við Steve Bruce, Gary Pallister, Denis Irwin og Bryan Robson.“ „Sumir gætu sagt að þetta væri harkalegt en þetta snerist bara um hollustu við félagið. Ég var stjóri þeirra og var með mennina í vinnu. Það var undir mér komið að sjá til þess að Manchester United var ávallt besta liðið,“ segir Sir Alex Ferguson.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sir Alex opnar sig um hárþurrkuna: „Ég stjórnaði ekki með ótta“ Fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United segist ekki hafa stjórnað með ótta og sögur af hárþurrkunni séu stórlega ýktar. 10. nóvember 2016 08:30 Mest lesið Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Íslenski boltinn Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Enski boltinn „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Körfubolti Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Handbolti „Það var eins og við værum á heimavelli“ Sport Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski bikarinn á sviðið Sport Fötluðum börnum í íþróttum fjölgar en viðhorfsbreytingu þarf hjá þjóðinni Sport Jón Dagur skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með Brann Fótbolti Fleiri fréttir Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Sjá meira
Sir Alex opnar sig um hárþurrkuna: „Ég stjórnaði ekki með ótta“ Fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United segist ekki hafa stjórnað með ótta og sögur af hárþurrkunni séu stórlega ýktar. 10. nóvember 2016 08:30