Fyrstu jól fjölskyldunnar voru frekar erfið að sögn Hrafnhildar enda fyrsta skiptið sem þau voru ein.
„Þá bjuggum við í Atlanta svo við ákváðum að gera eitthvað öðruvísi. Við keyrðum niður til Orlando í Flórída og eyddum jólunum í Disney World. Krökkunum fannst það mjög gaman og var ferðin góð leið til að leiða hugann frá því að við værum ekki heima á Íslandi.“

Eftir eitt ár í Atlanta flutti fjölskyldan sig um set til Montreal sem er mjög fjölþjóðleg borg.
Að sögn Hrafnhildar er hefðbundinn jólamatur í Kanada réttur sem kallast Tourtière.
„Um er að ræða kjötböku sem er upprunnin frá Quebec og er yfirleitt byggð á hægelduðu svínakjöti, kálfakjöti eða nautakjöti. Villibráð er oft notuð til að auka bragðið. Einnig er vinsælt að hafa steiktan kalkún í matinn. Við höfum hins vegar haft hamborgarhrygg í matinn ásamt meðlæti síðustu tvenn jól okkar hér.“
Það er haldið í fleiri hefðir en hamborgarhrygginn. Börnin fá jóladagatöl og fjölskyldan byrjar að skreyta heima í byrjun desember.
„Við höldum okkur við íslensku jólasveinana og því setja krakkarnir skóinn út í glugga. Einnig höfum við borðað jólamatinn á aðfangadagskvöld og opnað pakkana. Auk þess búum við til aðventukrans og kveikjum á aðventukertunum, bökum jólasmákökur og piparkökur.“

Síðustu jól kom móðir Hrafnhildar til þeirra og hélt upp á jólin með þeim.
„Hún tók með laufabrauð þannig að við gátum skorið það út sem krökkunum fannst mjög gaman. Þau tóku það svo með í skólann og gáfu kennurum og vinum að smakka.
Við höfum farið á sveitabæ hér aðeins fyrir utan borgina og höggvum jólatréð okkar sjálf. Þetta er sami sveitabærinn og við heimsækjum á sumrin til að týna jarðarber og epli á haustin.
Í Montreal er hefð fyrir því að borða jólamatinn seint á aðfangadagskvöld, vekja svo krakkana upp úr miðnætti og opna gjafirnar. Svo er fjölskylduhádegismatur á jóladag. Meira er svo varla gert svo þetta eru í raun bara tveir dagar hér.“

„Annars er voðalega kósí að upplifa jólin annars staðar en á Íslandi. Það kom okkur foreldrunum í sjálfu sér ekkert á óvart en krakkarnir tala mikið um það hvað jólin hér eru öðruvísi en heima á Íslandi.
Til dæmis er besta vinkona Rakelar gyðingatrúar og heldur því öðruvísi upp á hátíðarnar. Dóttur okkar fannst það mjög skrítið í fyrstu en fékk svo að upplifa þau svolítið í gegnum vinkonu sína. Svo er einn vinur hans Ísaks í Vottum Jehóva og heldur því ekki upp á nein jól.
Okkur finnst í raun bara æðislegt hvað allt er fjölþjóðlegt hér og krakkarnir okkar fái innsýn í fleiri menningarheima.“