Gylfi átti þátt í öllum fimm mörkum Swansea | Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. nóvember 2016 10:00 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sínu gegn Crystal Palace. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson átti frábæran leik þegar Swansea vann 5-4 sigur á Crystal Palace í ævintýralegum leik en sex leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í gær. Swansea komst í 3-1 en fékk svo á sig þrjú mörk á níu mínútum en varamaðurinn Fernando Llorente kom velska liðinu til bjargar með tveimur mörkum í uppbótartíma. Með sigrinum fór Swansea úr botnsætinu. Gylfi Þór skoraði fyrsta mark Swansea úr aukaspyrnu en átti svo þátt í öllum öðrum mörkum Swansea í leiknum, annað hvort með stoðsendingu eða lykilsendingu. Manchester City, Liverpool og Chelsea voru öll á einhverjum tímapunkti á toppi deildarinnar í gær. Man City hóf daginn á því að vinna torsóttan 1-2 sigur á Burnley á Turf Moor. Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley en fór meiddur af velli skömmu fyrir hálfleik. Man City var um tvo og hálfan klukkutíma á toppnum. Liverpool tók því næst toppsætið með 2-0 sigri á Sunderland á heimavelli. Það var svo Chelsea sem endaði daginn á toppnum eftir 2-1 sigur á Tottenham á Stamford Bridge. Thibaut Courtois þurfti loksins að sækja boltann í netið eftir að hafa haldið hreinu í sex leikjum í röð. Það kom þó ekki að sök því mörk frá Pedro og Victor Moses tryggðu Chelsea stigin þrjú. Islam Slimani tryggði Englandsmeisturum Leicester City stig gegn Middlesbrough þegar hann jafnaði metin í 2-2 úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Þá gerðu Hull City og West Brom 1-1 jafntefli.Mörkin 23 sem voru skoruð í leikjum gærdagsins má sjá hér að neðan.Swansea 5-4 Crystal Palace Burnley 1-2 Man City Liverpool 2-0 Sunderland Chelsea 2-1 Tottenham Leicester 2-2 Middlesbrough Hull 1-1 West Brom
Enski boltinn Mest lesið „Það var eins og við værum á heimavelli“ Sport „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Körfubolti Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Enski boltinn Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Íslenski boltinn Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Handbolti Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Fótbolti Dramatík í Suðurnesjaslag Íslenski boltinn Elín Klara með sex mörk í mikilvægum sigri Handbolti Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll 113-76 Ármann | Stólarnir ekki í vandræðum í Síkinu Körfubolti Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Fleiri fréttir Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ Sjá meira