Enski boltinn í dag: Heldur sigurganga Chelsea áfram? | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. nóvember 2016 10:00
Þrettánda umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í dag með sex leikjum. Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley fá meistarakandítata Manchester City í heimsókn á Turf Moor í hádeginu. Burnley hefur náð í 13 af 14 stigum sínum á heimavelli en strákarnir hans Sean Dyche unnu m.a. Liverpool í 2. umferðinni á Turf Moor. Yaya Touré sneri aftur í lið Man City í síðustu umferð og tryggði liðinu sigur á Crystal Palace með tveimur mörkum. Áhugavert verður að sjá hvort hann fær aftur tækifæri í dag. Klukkan 15:00 hefjast fjórir leikir. Liverpool fær Sunderland í heimsókn. Rauði getur endurheimt toppsætið með sigri á meðan Sunderland stefnir á þriðja sigurinn í röð. Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City fá ískalt lið Palace í heimsókn. Báðum liðum hefur gengið illa á tímabilinu en þau hafa aðeins unnið fjóra leiki samtals. Englandsmeistarar Leicester City taka á móti Middlesbrough. Refirnir eru aðeins tveimur stigum frá fallsæti og þurfa nauðsynlega að ná í þrjú stig í dag. West Brom rúllaði yfir Burnley á mánudaginn og mætir nú liði Hull City sem hefur tapað sjö af síðustu átta leikjum sínum. Klukkan 17:30 er svo komið að stórleik Chelsea og Tottenham á Stamford Bridge. Chelsea er komið á toppinn eftir að hafa unnið síðustu sex leiki sína með markatölunni 17-0. Tottenham er í 5. sætinu en lærisveinar Mauricio Pochettino eru eina lið deildarinnar sem hefur ekki enn tapað leik.Leikir dagsins: 12:30 Burnley - Man City (beint á Stöð 2 Sport HD) 15:00 Liverpool - Sunderland (beint á Stöð 2 Sport HD) 15:00 Swansea - Crystal Palace (sýndur á Stöð 2 Sport 3 HD klukkan 17:15) 15:00 Leicester - Middlesbrough (sýndur á Stöð 2 Sport HD klukkan 19:30) 15:00 Hull - West Brom (sýndur á Stöð 2 Sport 2 HD klukkan 19:30) 17:30 Chelsea - Tottenham (Stöð 2 Sport HD)
Enski boltinn Mest lesið „Það var eins og við værum á heimavelli“ Sport „Mér er alveg sama hvað aðrir halda“ Körfubolti Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Enski boltinn Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Íslenski boltinn Dramatík í Suðurnesjaslag Íslenski boltinn Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Fótbolti Þorsteinn Leó öflugur í sigri Porto Handbolti Elín Klara með sex mörk í mikilvægum sigri Handbolti Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll 113-76 Ármann | Stólarnir ekki í vandræðum í Síkinu Körfubolti Smokkarnir kláruðust í Ólympíuþorpinu á þremur dögum Sport Fleiri fréttir Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ Sjá meira