Watch Dogs 2: Skemmtigarður hipstersins Samúel Karl Ólason skrifar 23. nóvember 2016 08:45 Marcus Holloway er ofurhetja hipsteranna. Mynd/Ubisoft
Watch Dogs 2 bætir við forvera sinn á nánast öllum sviðum. Hann lítur mjög vel út og er skemmtilegur og fyndinn. Í raun er ekki margt sem hægt er að setja út á, en auðvitað eru þó nokkur atriði. Þar má fyrst og fremst ræða sögu leiksins og persónurnar sem draga leikinn verulega niður. Marcus Holloway er nokkuð merkilegur ungur maður. Hann á síma sem gerir honum kleift að brjótast inn í og leika sér að nánast öllu sem er tengt netinu og leikið sér að því. Hann er í raun mikill hipster og býr í höfuðborg hipsteranna, San Francisco. Marcus lenti í klóm fyrirtækisins Blume, sem safnar gögnum um borgara, og þarf hann ásamt vinum sínum í hakkaragenginu DedSec að safna fylgjendum á samfélagsmiðlum. Fylgjendur sækja app og þannig öðlast DedSec aukna reiknigetu og verða færari um að berjast af meiri krafti. Til þess að safna fylgjendum er hægt að leysa ýmis verkefni af hólmi sem eru á víð og dreif um San Francisco. Þar á meðal er að taka sjálfu af Marcus við fræg kennileiti og birta á samfélagsmiðlum. Marcus fer einnig í stríð við „vonda“ aðila og fyrirtæki til að byggja upp nafn DedSec.Marcus og vinir hans í DedSec.Mynd/UbisoftÍ leiknum má finna verkefni sem ganga út á að lækka rostann í ríkum ungum manni sem sem varð hataður við að hækka verðið á nauðsynlegum lyfjum. (Hljómar kunnuglega). Í leiknum er hann að reyna að kaupa plötu af frægum rappara, svo hann geti einn hlustað á hana og Marcus platar hann til að gefa peningana frekar til góðgerðarmála. Annað stórt verkefni felur í sér að koma gamalli hasarmyndahetju til bjargar frá sértrúarsöfnuði sem heilaþvær fólk og rænir af því aleigunni. Enn eitt verkefni gengur út á að brjótast inn í tölvukerfi Ubisoft í San Francisco og stela stiklu fyrir tölvuleik. Til að leysa þessi verkefni býr ofurhetjan Marcus yfir töfrasíma sem getur brotist inn í allt mögulegt, tveimur drónum, einum fljúgandi og einum akandi og hoppandi, byssum og hæfileikum sínum í parkour. Í WD2 er San Francisco í raun bara skemmtigarður spilara þar sem leikföngin og eru nánast endalaus.Það sem hefur vakið furðu mína í leiknum eru persónur hans. Ungt fólk með skýra sýn á betri heimi sem vilja berjast gegn óréttlæti. Aðalpersónan og vinir hans í DedSec vilja bjarga almennum borgurum frá því að stórt og vont fyrirtæki safni gögnum um þau. Til þess eru þau sátt við að beita öllum brögðum, sama þó þessir almennu borgarar sem þau berjast fyrir séu í skotlínunni. „Hei! Þessir eru vondir. Stelum gögnum af þeim og birtum á netinu til að safna áskrifendum,“ segir einhver í hópnum. „Já. Geðveik hugmynd,“ segir Marcus. Til þess að stela áðurnefndum gögnum þarf þó oftar en ekki að brjótast inn í eitthvað hús og stela þeim í eigin persónu. Það felur yfirleitt í sér að maður þarf að salla niður heilu hópana af saklausum öryggisvörðum og jafnvel lögregluþjónum. (Ég veit að það er hægt að laumast um og sleppa því að skjóta fólk, hönnuðir leiksins hafa sagt að það eigi helst að spila hann þannig, en ég er þarna og ég er vel vopnaður) Maður upplifir sig í raun sem nokkurs konar blöndu af Lisbeth Salander, Ezio Auditore og Trevor Philips. Skemmtileg blanda, en mjög furðuleg.Lifandi og fersk borg San Francisco lítur mjög vel út í WD2. Hún er lifandi og það er nóg að gera í borginni. Leikurinn gerir mikið grín að staðaltýpum, samtökum, fólki og mörgu öðru og það er vel hægt að hlæja yfir leiknum. Þar sem þetta er nú San Francisco getur fólk á götum borgarinnar verið mjög skrautlegt. Eitt sinn þegar ég var á flótta undan vopnuðum glæpamönnum og á hlaupum út húsasund snarstöðvaði ég þegar ég sá allsberan mann (hann var reyndar með húfu) pissa á bíl. Ég elti þennan mann um þó nokkra stund og með því að hakka síma mannsins, sem ég geri ráð fyrir að hafi verið í húfunni, komst ég að því að hann hafði misst aleiguna í hruninu og var greinilega ekki í toppstandi. Ég gafst upp á að fylgjast með honum þegar hann kom sér fyrir í strætóskýli og var að bíða eftir strætó. Svona atriði eru frábær og það er mjög auðvelt að gleyma því að maður var á leiðinni að stela vörubíl frá hugbúnaðarfyrirtæki þegar maður ferðast um San Francisco. Það að finna nýjar og skemmtilegar leiðir til að klekja á óvinum sínum er með því skemmtilegasta í leiknum. WD2 býður upp á fjölspilun þar sem maður á að geta farið inn í leiki hjá öðrum og meðal annars aðstoðað lögregluna við að handsama þá. Ubisoft slökkti þó á fjölspiluninni á fyrsta degi vegna tæknilegra örðugleika og hefur ekki verið kveikt á henni aftur. Það mun þó vera í vinnslu.Samanburður á grafík
Leikjadómar Leikjavísir Tengdar fréttir GameTíví dæmir - Call of Duty: Infinite Warfare Óli henti sér út í geim og skoðaði nýjasta leikinn í leikjaseríunni vinsælu. 22. nóvember 2016 10:15 Battlefield 1: Heillaskref aftur á bak Fyrri heimsstyrjöldin reynist tilvalin vettvangur fyrir Battlefield seríuna. 26. október 2016 08:45 Call of Duty: Fastir í gömlum förum IW er skemmtilegur leikur sem virkar eins og um sjö klukkutíma löng hasarmynd en gallinn er sá að þrátt fyrir að leikurinn líti lengra til framtíðarinnar en áður er lítið sem ekkert um framþróun. 11. nóvember 2016 12:00 Civilization 6: Áratuga reynsla skilar frábærum leik Eins og með svo gott sem alla aðra Civ-leiki, þegar þeir komu út, er CIV 6 líklegast sá besti hingað til. 2. nóvember 2016 08:45 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Fleiri fréttir Árlegt „Fifa“mót GameTíví GameTíví: Heldur för sinni um Night City áfram God of War Ragnarök á PC: Kratos er enn klikkaður Stiklusúpa: Allt það helsta frá kynningu Sony í gær GameTíví: Íslendingaslagur í Warzone Space Marine 2: Fyrirtaks skemmtun af gamla skólanum Ólympíukvöld hjá GameTíví GameTíví: Plortedo spilar sig gegnum Night City CCP kynnir nýjan leik í söguheimi EVE Online GameTíví: Skúrkur í skýjunum GameTíví: Stefna á þrjá sigra í Warzone Astro Bot: Astro stígur ekki feilspor í nánast fullkomnum leik Star Wars heimurinn skoðaður í GameTíví Star Wars Outlaws: Ekki eins hræðilegur og internetið segir Endurgreiða þeim fáu sem keyptu Concord GameTíví: Snúa hlekkjaðir saman úr sumarfríi Sjá meira
GameTíví dæmir - Call of Duty: Infinite Warfare Óli henti sér út í geim og skoðaði nýjasta leikinn í leikjaseríunni vinsælu. 22. nóvember 2016 10:15
Battlefield 1: Heillaskref aftur á bak Fyrri heimsstyrjöldin reynist tilvalin vettvangur fyrir Battlefield seríuna. 26. október 2016 08:45
Call of Duty: Fastir í gömlum förum IW er skemmtilegur leikur sem virkar eins og um sjö klukkutíma löng hasarmynd en gallinn er sá að þrátt fyrir að leikurinn líti lengra til framtíðarinnar en áður er lítið sem ekkert um framþróun. 11. nóvember 2016 12:00
Civilization 6: Áratuga reynsla skilar frábærum leik Eins og með svo gott sem alla aðra Civ-leiki, þegar þeir komu út, er CIV 6 líklegast sá besti hingað til. 2. nóvember 2016 08:45