Vilja bara fá eiginhandaráritun Zola og þess vegna réðu þeir hann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. desember 2016 09:30 Gianfranco Zola og Gary Rowett. Vísir/Samsett frá Getty
Enska félagið Birmingham City ætlar að gefa Ítalanum Gianfranco Zola eitt tækifæri enn til sanna sig sem knattspyrnustjóri í enska boltanum en það eru ekki allir hrifnir af því. Eigendur Birmingham City gerðu tveggja og hálfs árs samning við Gianfranco Zola en liðið er eins og er í áttunda sæti ensku b-deildarinnar og því í hörku baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildin á ný. Breski blaðamaðurinn Pat Murphy sem starfar hjá BBC er allt annað en hrifinn af þróun mála hjá félaginu. Murphy segir ráðninguna dæmi um stjörnudýrkun eigendanna og að þarna séu menn við stjórna sem elta frekar eiginhandaáritanir en að stýra fótboltafélagi af einhverju viti. Það er hægt að hlusta á Murphy hér. Birmingham City rak Gary Rowett á miðvikudaginn en hann var búinn að vera með liðið í tvö ár. Liðið er aðeins þremur stigum frá þriðja sæti deildarinnar og hefur aðeins tapað fimm leikjum á tímabilinu. Gianfranco Zola er fimmtugur og var á sínum tíma einn allra besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar þegar kappinn fór á kostum á sjö tímabilum með liði Chelsea. Þetta er fyrsta starf hans síðan að hann hætti hjá Al-Arabi SC í Katar en þar áður hafði hann verið innan við eitt ár hjá Cagliari þar sem hann á sínum tíma spilaði tvö síðustu tímabilin á ferlinum. Gianfranco Zola hefur tvisvar áður reynt fyrir sér hjá ensku félagi. Undir hans stjórn vann West Ham aðeins 23 af 80 leikjum frá 2008 til 2010 (29 prósent) en það gekk aðeins en ekki mikið betur með Watford sem vann 33 af 75 leikjum (44 prósent) undir hans stjórn frá júlí 2012 til desember 2013. Zola fékk ekki nýjan samning hjá West Ham og hann sagði sjálfur upp hjá Watford. Hann var afrtur á móti rekinn frá bæði Cagliari og Al-Arabi SC.
Enski boltinn Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Trump forseti náðar fimm fyrrum leikmenn Sport Átján ára Íslendingur sigrar heiminn: „Getur farið alla leið“ Sport Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Fótbolti Lá hreyfingarlaus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið Sport Tudor tekur við Tottenham Enski boltinn Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Sport „Hann er skíthræddur“ Enski boltinn Ólympíugull og bónorð á sömu Ólympíuleikum Sport Áfrýjar brottvísun af Ólympíuleikunum til Íþróttadómstólsins Sport Fleiri fréttir Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin Sjá meira