Fyrsta skallaþrennan í 19 ár | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. desember 2016 08:20
Varnarmenn Swansea City réðu ekkert við Salomón Rondón, framherja West Brom, í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær.West Brom vann leikinn 3-1 og skoraði Rondón öll þrjú mörk liðsins. Og það sem meira er, öll með skalla. Rondón varð þar með sá fyrsti í 19 ár, og aðeins annar leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, sem skorar þrennu með skalla.Duncan Ferguson kunni að skalla boltann.vísir/gettyHinn sem hefur afrekað það að skora skallaþrennu er Duncan Ferguson. Skoski framherjinn gerði það í 3-2 sigri Everton á Bolton Wanderers 28. desember 1997. Þess má geta að Guðni Bergsson lék allan leikinn í vörn Bolton þann dag og skoraði fyrra mark liðsins. Arnar Gunnlaugsson kom einnig inn á sem varamaður í leiknum. Það tók Rondón aðeins 13 mínútur að skora þrennuna í leiknum á The Hawthornes í gær. Venesúelamaðurinn kom West Brom yfir á 50. mínútu eftir aukaspyrnu Matt Philipps frá hægri. Á 61. mínútu skoraði Rondón sitt annað mark eftir fyrirgjöf Chris Brunt frá vinstri. Tveimur mínútum síðar fullkomnaði Rondón þrennuna með skalla í slá og inn eftir aðra fyrirgjöf frá Brunt. Wayne Routhledge lagaði stöðuna fyrir Swansea á 78. mínútu en það breytti engu um úrslitin. Rondón hefur skorað sjö mörk á tímabilinu sem er hans annað hjá West Brom. Hann kom til liðsins frá Zenit í Pétursborg fyrir 12 milljónir punda í ágúst 2015. West Brom hefur verið í góðum gír að undanförnu og er í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 23 stig. Næsti leikur liðsins er gegn Manchester United á laugardaginn.We use our heads to think... And also to put the ball in the back of the net!Great night for the Baggies! #WBA pic.twitter.com/9MDuIcy4AV— Salomón Rondón (@salorondon23) December 14, 2016
Enski boltinn Tengdar fréttir Þrenna Rondon sá um Gylfa og félaga | Sjáðu mörkin Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea máttu sætta sig við 3-1 tap gegn WBA í enska boltanum í kvöld. 14. desember 2016 21:45 Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Trump forseti náðar fimm fyrrum leikmenn Sport Átján ára Íslendingur sigrar heiminn: „Getur farið alla leið“ Sport Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Fótbolti Tudor tekur við Tottenham Enski boltinn Lá hreyfingarlaus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið Sport „Hann er skíthræddur“ Enski boltinn Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Sport Fjölskylda Patta kaus að bjóða frekar frítt inn Sport Englendingar óttast að Tuchel endi eins og Capello Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjá meira
Þrenna Rondon sá um Gylfa og félaga | Sjáðu mörkin Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea máttu sætta sig við 3-1 tap gegn WBA í enska boltanum í kvöld. 14. desember 2016 21:45