Gleðileg tuðarajól Tómas Þór Þórðarson skrifar 22. desember 2016 07:00 Sælla er að gefa en þiggja var einhvern tíma sagt. Undir þeim formerkjum hefði maður haldið að gaman væri að fara og kaupa eitthvað fallegt sem þú gefur svo öðrum og bíður spenntur eftir brosinu á andliti viðkomandi. Það virðist þó ekki vera alveg satt ef marka má stemninguna á jólagjafarúnti Íslendinga. Ég tók strauið í vikunni og kláraði innkaup á flestöllum gjöfum sem ég læt af hendi þessi jólin. Ég hef líklega aldrei dottið úr meiri jólafíling en eftir þann bíltúr. Og er ég nú ekkert jólabarn fyrir. Sjálfur skal ég viðurkenna að sem mjög reiður bílstjóri var biluð umferðin og ökulag margra ykkar sem eruð að lesa þetta að fara óstjórnlega í taugarnar á mér. Þið heyrið mig ekki öskra á ykkur í gegnum rúðuna en Guð minn góður hvað þið eruð mörg fyrir mér. Það var inni í verslunarkjörnunum og búðunum sjálfum þar sem ég fékk ógeð. Það tók á sums staðar að sjá greyafgreiðslufólkið sem stendur vaktina svo klukkustundum skiptir að afgreiða fleiri þúsundir Íslendinga og fá öskur og tuð í andlitið yfir minnstu hlutum. Það er fátt ósanngjarnara en að taka jólastressið út á einhverjum sem er að reyna að hjálpa þér. Það er einhver almesti misskilningur sögunnar að viðskiptavinurinn hafi alltaf rétt fyrir sér. Þetta er setning sem hljómar vel en er algjört kjaftæði. Ef viðskiptavinurinn hefði alltaf rétt fyrir sér væri hann að vinna í búðinni eða jafnvel eigandi hennar. Sá sem er að afgreiða þig veit meira um vöruna og búðina og er að reyna að hjálpa þér. Segðu bara takk og gleðileg jól. Þetta er jú hátíð ljóss og friðar – ekki tuðs og öskra.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tómas Þór Þórðarson Mest lesið Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks Skoðun
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir Skoðun
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun