„Ef Pogba kostar 100 milljónir kostar Aubameyang 150 því hann breytir leikjum“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. desember 2016 12:30 Á Pierre-Emerick Aubameyang að vera dýrari en Pogba? vísir/getty
Pierre-Emerick Aubameyang, framherji þýska 1. deildar liðsins Dortmund, er töluvert verðmætari en Paul Pogba, dýrasti fótboltamaður heims, að mati Lothar Matthäus, fyrrverandi heimsmeistara með þýska landsliðinu og einum besta varnarmanni sögunnar. Pogba varð dýrasti fótboltamaður sögunnar þegar hann sneri aftur á Old Trafford í sumar frá Juventus en Aubameyang er einn eftirsóttasti leikmaður heims í dag vegna frammistöðu sinnar með Dortmund undanfarin misseri. Gabonski framherjinn er búinn að skora 20 mörk í 22 leikjum í öllum keppnum fyrir Dortmund á þessari leiktíð en hann skoraði 39 mörk í 49 leikjum og lagði upp önnur tólf á síðasta tímabili. Paul Pogba var frábær með Juventus í ítölsku A-deildinni á síðustu leiktíð og varð Ítalíumeistari fjórða árið í röð og þá átti hann stóran þátt í því að Juventus komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrir hálfu öðru ári síðan. Hann er þó ekki alveg að sýna það sem menn vonuðust eftir hjá Manchester United. Franski landsliðsmaðurinn er búinn að spila 27 leiki fyrir United síðan hann gekk aftur í raðir enska liðsins og skora þrjú mörk. „Ef leikmaður eins og Pogba kostar 100 milljónir evra ætti Dortmund að fá 150 milljónir fyrir Aubameyang. Það er leikmaður sem breytir leikjum en Pogba gerir það ekki,“ segir Matthäus í pistli sínum í þýska blaðinu Bild.
Enski boltinn Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Trump forseti náðar fimm fyrrum leikmenn Sport Átján ára Íslendingur sigrar heiminn: „Getur farið alla leið“ Sport Lá hreyfingarlaus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið Sport Áfrýjar brottvísun af Ólympíuleikunum til Íþróttadómstólsins Sport Ólympíugull og bónorð á sömu Ólympíuleikum Sport Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Sport Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúla 1 Englendingar óttast að Tuchel endi eins og Capello Fótbolti Atlético burstaði Barcelona í undanúrslitum Fótbolti Fleiri fréttir Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Sjá meira