Zlatan telur Lindelöf tilbúinn í að spila fyrir United Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. desember 2016 15:15 Zlatan getur haldið í höndina á Lindelöf fyrstu vikurnar í Manchester. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic, framherji Manchester United, telur fyrrverandi samherja sinn í sænska landsliðinu, Victor Lindelöf, tilbúinn í að spila fyrir stórlið eins og Manchester United en miðvörðurinn ungi virðist vera á leiðinni á Old Trafford. Enskir miðlar fullyrða að Manchester United og portúgalska stórliðið Benfica hafi komist að samkomulagi um 38 milljóna punda (5,3 milljarða króna) kaup enska félagsins á Lindelöf sem gekk í raðir Benfica frá Västerås í Svíþjóð fyrir fjórum árum. Benfica er sagt hafa verið hikandi fyrst um sinn að selja miðvörðinn þar sem liðið komst áfram í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar en verðmiðinn sé einfaldlega of heillandi fyrir Portúgalana. Lindelöf kom 18 ára gamall til Benfica og spilaði 97 leiki fyrir B-lið Benfica áður en hann fékk fyrst tækifæri með aðalliðinu í fyrra, 21 árs gamall. Hann hefur spilað 28 deildarleiki í Portúgal og ellefu landsleiki og er samkvæmt kaupverðinu fimm milljarða virði. „Hann er vaxandi leikmaður. Hann ber mikla ábyrgð hjá sænska landsliðinu í dag,“ segir samlandi hans og stjörnuframherji Manchester United, Zlatan Ibrahimovic, um Lindelöf. „Er hann nógu góður fyir United? Ég tel hann tilbúinn í að spila fyrir stórlið. Það er svo undir komið hvað hann gerir. Hvað sem hann kýs að gera verður það gott fyrir hann. Ég veit að hann er heit vara þessa dagana þannig leyfum honum að ráða hvert hann fer næst,“ segir Zlatan Ibrahimovic.
Enski boltinn Mest lesið Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Sport Trump forseti náðar fimm fyrrum leikmenn Sport Átján ára Íslendingur sigrar heiminn: „Getur farið alla leið“ Sport Lá hreyfingarlaus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið Sport Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Fótbolti Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Sport Ólympíugull og bónorð á sömu Ólympíuleikum Sport Áfrýjar brottvísun af Ólympíuleikunum til Íþróttadómstólsins Sport Englendingar óttast að Tuchel endi eins og Capello Fótbolti Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúla 1 Fleiri fréttir „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Sjá meira