Manchester United fyrsta félagið til að ráða yfirmann hryðjuverkavarna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. janúar 2017 09:30
Manchester United er fyrsta íþróttafélagið í Englandi sem hefur ráðið sérstakan yfirmann hryðjuverkavarna í fullt starf. United hefur nú fengið fyrrum rannsóknarlögreglumann hjá sérsveit Manchester-lögreglunnar til að sinna þessu nýja starfi hjá félaginu.BBC segir frá því að nýi yfirmaðurinn í baráttunni við hryðjuverk hafi verið tilkynntur á almennum umræðufundi hjá félaginu á dögunum. Þessi breyting er ein af mörgum hjá Manchester United til að bæta varnir gegn hryðjuverkum á Old Trafford leikvanginum á leikdögum. Allir bifreiðar sem koma inn á bílastæðin tengdum vellinum þurfa nú að fara í gegnum sérstaka skoðun og þá er leitað á öllum áhorfendum þegar þeir koma inn á völlinn. Manchester United hefur aukið mjög eftirlit og varnir gegn mögulegum hryðjuverkum eftir uppákomuna í lokaleik síðasta tímabils. Fresta þurfti þá leik liðsins á móti Bournemouth eftir að leikvangurinn var rýmdur í kjölfarið að sprengja fannst á klósetti á vellinum. Þegar betur var að gáð kom í ljós að ekki var um alvöru sprengju að ræða. Platsprengjan hafði gleymst á æfingu gegn mögulegum hryðjuverkum sem hafði farið fram á Old Trafford í vikunni á undan leiknum. Ekki var það til að auka öryggi manna á Old Trafford þegar tveimur mönnum tókst í nóvember að fela sig inn á klósetti á vellinum eftir að hafa laumað sér burtu úr kynnisferð um leikvanginn. Mennirnir ætluðu að redda sér inn á leik við Arsenal en lögreglan fann þá morguninn eftir og handtók. Þeir fengu því ekki að sjá leikinn eftir allt saman.
Enski boltinn Mest lesið „Ólympíuverðlaununum var stolið frá mér“ Sport Hent út af ÓL vegna hjálmsins Sport Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Enski boltinn Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Enski boltinn ICE-sveitin verður í lykilhlutverki í öryggisgæslu á HM í Bandaríkjunum Fótbolti „Klúðraði þessu svolítið vel í dag“ Sport Ólympíumeistarinn sem fer eigin leiðir og keppir undir söng Laufeyjar Sport Hræðilegt fall á Ólympíuleikunum hjá fyrrum silfurhafa Sport Stal kreditkorti liðsfélaga og fagnaði gulli fyrir framan hana Sport Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Fótbolti Fleiri fréttir Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjá meira