Markametið féll í Stoke Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. janúar 2017 07:00
Wayne Rooney kom Manchester United til bjargar þegar liðið sótti Stoke City heim á laugardaginn. Rooney kom inná sem varamaður og jafnaði metin með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur 1-1 á Bet365 vellinum. Þetta var ekki bara eitthvað mark, heldur 250. mark Rooneys fyrir United og hann er nú orðinn markahæsti leikmaður í sögu félagsins. Rooney jafnaði markamet Sir Bobbys Charlton í bikarleik gegn Reading fyrir tveimur vikum og sló svo metið núna á laugardaginn. „Ég væri að ljúga ef ég segðist ekki vera svekktur með að missa metið. Hins vegar er ég hæstánægður fyrir hönd Rooneys. Hann á skilið að vera í sögubókunum,“ sagði Charlton eftir leikinn gegn Stoke. Rooney hefur ekki bara slegið markamet Charltons hjá United heldur einnig hjá enska landsliðinu. Þótt Rooney hafi látið verulega á sjá á undanförnum misserum og sé ekki lengur fastamaður í liði United er ekki hægt að horfa framhjá því að maðurinn hefur átt frábæran feril. Rooney hefur unnið allt sem hægt er að vinna með United og er bæði markahæsti leikmaður í sögu félagsins og enska landsliðsins. Og þegar hann leggur skóna á hilluna verður hann væntanlega leikjahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins. Það er ekki slæm arfleið hjá Rooney sem kom 18 ára gamall til United árið 2004. Enginn í leikmannahópi United hefur verið lengur hjá félaginu en Rooney. „Þetta skiptir mjög miklu máli. Þetta er mikill heiður og ég er mjög stoltur. Það er erfitt að vera yfir sig glaður núna vegna úrslita leiksins en heilt yfir er þetta mikill heiður,“ sagði Rooney eftir leikinn sögulega gegn Stoke. Það var sautjándi leikur United í röð án taps. Þrátt fyrir það virðist liðið fast í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið „Ólympíuverðlaununum var stolið frá mér“ Sport Hent út af ÓL vegna hjálmsins Sport Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Enski boltinn Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Enski boltinn ICE-sveitin verður í lykilhlutverki í öryggisgæslu á HM í Bandaríkjunum Fótbolti „Klúðraði þessu svolítið vel í dag“ Sport Ólympíumeistarinn sem fer eigin leiðir og keppir undir söng Laufeyjar Sport Hræðilegt fall á Ólympíuleikunum hjá fyrrum silfurhafa Sport Stal kreditkorti liðsfélaga og fagnaði gulli fyrir framan hana Sport Ísland veit hvaða andstæðingar bíða í C-deildinni Fótbolti Fleiri fréttir Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sjáðu sigurmark Liverpool, markaveislu City í fyrri og tvö sjálfsmörk sem réðu öllu Nottingham Forest rak stjórann í þriðja sinn á leiktíðinni Forsætisráðherra og fleiri krefjast afsökunarbeiðni frá eiganda Man. United Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjá meira