Investor ehf. kaupir Kornið Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. febrúar 2017 23:38 Kornið - handverksbakarí hefur verið starfrækt í 36 ár. Vísir/Valli
Fjárfestingafélagið Investor ehf. hefur keypt Kornið - handverksbakarí. Kaupsamningur var undirritaður í upphafi ársins en Investor tekur yfir allan rekstur bakarísins, vörumerki og útsölustaði. Investor tók við rekstrinum um síðustu mánaðarmót eftir að áreiðanleikakönnun hafði farið fram. Í tilkynningu frá nýjum eigendum segir að markmið þeirra sé að leggja áherslu á uppbyggingu fyrirtækisins með gæði og þjónustu að sjónarmiði. Helga Kristín Jóhannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hún er með B.S. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.S. gráðu frá IE Business School í Madrid. Helga Kristín hefur undanfarin ár starfað sem sérfræðingur í fyrirtækjaráðgjöf hjá PwC og áður m.a. sem vörustjóri SensorX hjá Marel og sérfræðingur á gæðasviði hjá Nóa Síríus. Kornið - handverksbakarí var stofnað árið 1981. Baksturinn fer að mestu fram í Kópavogi. Fyrirtækið rekur tólf bakarí á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum undir merkjunum Kornið, Fjarðarbakarí, Árbæjarbakarí og Köku Kompaníið. Hjá fyrirtækinu starfa alls um 90 starfsmenn.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira