Kvinnan fróma, klædd með sóma Jónas Sen skrifar 4. febrúar 2017 13:15 Fólk úr Caput, ásamt Hönnu Sturludóttur. Myndi var ekki tónleikunum sem hér um ræðir. Valli
Tónlist Caput hópurinn flutti verk eftir Jónas Tómasson, Sigurð Árna Jónsson, Áskel Másson og Niels Rosing-Schow á Myrkum músíkdögum. Stjórnandi: Guðni Franzson. Einleikari: Helene Navasse. Norðurljós í Hörpu Laugardaginn 28. janúar Átta hægir dansar handa Láru eftir Jónas Tómasson, sem fluttir voru á tónleikum Caput hópsins á Myrkum músíkdögum, vöktu spurningar. Fyrir það fyrsta var tónlistin einn samfelldur kafli og erfitt að greina hvenær einn dansinn endaði og sá næsti tók við. Í öðru lagi var fráleitt að um dans væri að ræða, því takturinn í tónlistinni var svo torkennilegur að hann var í rauninni ekki til staðar. Nú getur nútímadans auðvitað verið nokkurn veginn hvað sem er og vissulega hægt að dansa við taktlausa tónlist, en þá finnst manni að eitthvað grípandi þurfi að vera við hana. Það sem hér var boðið upp á var hins vegar flatt og leiðinlegt, gersneytt öllum innblæstri. Verkið samanstóð af löngum, samhengislausum tónum sem mynduðu einstaklega fráhrindandi hljóma. Það var engin stígandi, engin framvinda, enginn fókus. Ég hef heyrt glæsileg tónverk eftir Jónas; hann getur gert betur en þetta. Flashlight eftir Niels Rosing-Schow kom ekki heldur vel út. Þar var eins konar einleikur, sem var í höndunum á Helene Navasse, en hún lék á bassaflautu. Einnig komu rafhljóð við sögu, og svo var meðleikurinn í höndunum á Caput hópnum. Mestmegnis grundvallaðist tónlistin á hröðum nótum og fínlegri áferð, sem náði aldrei að virka lokkandi. Grunnhugmyndirnar voru fyrst og fremst klisjur, og því risti heildarmyndin ekki djúpt. Einleikurinn var auk þess lítt krassandi, aðallega fálmkenndar tónahendingar sem höfðu ekkert að segja. Annað á dagskránni var tilkomumeira. Shades eftir Áskel Másson var að hluta til byggt á þjóðlaginu við textann „Kvinnan fróma, klædd með sóma“. Úr því vann tónskáldið stórbrotinn vef fjölbreytilegra litbrigða sem einkenndust af kröftugri framsetningu. Form verksins var nokkurs konar frásögn með spennuþrunginni uppbyggingu og sterkum hápunkti og niðurstöðu. Það var ánægjulegt áheyrnar. Referral Stampede eftir Sigurð Árna Jónsson var líka flott. Tónahugmyndirnar voru að vísu ekki sérlega skemmtilegar og minntu mjög á akademíska samtímatónlist frá áttunda áratuginum, en úrvinnslan var snörp og fókuseruð. Framvindan var því ávallt athyglisverð. Caput hópurinn spilaði vel í alla staði, leikurinn var nákvæmur og samtaka. Dagskráin hefði aftur á móti þurft talsvert meiri yfirlegu.Niðurstaða: Misjöfn dagskrá en flutningurinn var góður. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. febrúar 2017
Tónlistargagnrýni Mest lesið Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Tónlist Fleiri fréttir John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira