Endurkomusigur hjá Aroni sem lagði upp mark með löngu innkasti Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. febrúar 2017 22:00 Aron Einar Gunnarsson er með eitruð innköst. vísir/getty
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta, og félagar hans í Cardiff unnu flottan endurkomusigur gegn Derby á útivelli í ensku B-deildinni í kvöld, 4-3. Aron Einar var eins og alltaf í byrjunarliði Cardiff sem lenti 2-0 undir eftir 17 mínútur en velska liðið var komið 3-2 yfir á 57. mínútu. Aron Einar lagði upp 2-2 markið með löngu innkasti. Darren Bent jafnaði þá metin á 74. mínútu og gerði sig líklegan til að tryggja Derby eitt stig en Joe Ralls tryggði Cardiff sigurinn, 4-3, með marki úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Cardiff er búið að vinna tvo leiki í röð og þrjá af síðustu fjórum en það lyfti sér upp í tólfta sæti deildarinnar með sigrinum í kvöld. Ragnar Sigurðsson var óvænt kominn aftur í byrjunarlið Fulham sem vann mikilvægan 3-2 sigur gegn Nottingham Forest á útivelli, 3-2. Sigurmarkið var sjálfsmark gestanna á 72. mínútu. Ragnar var ekki búinn að koma við sögu hjá Fulham síðan 2. janúar en í síðustu sex leikjum var hann fjórum sinnum ónotaður varamaður og tvisvar sinnum ekki í leikmannahópnum. Miðvörðurinn öflugi var aftur á móti tekinn af velli á 28. mínútu. Hörður Björgvin Magnússon var ekki í leikmannahópi Bristol City fjórða leikinn í röð en liðið tapaði 2-1 fyrir Leeds. Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Úlfanna sem töpuðu 1-0 á heimavelli gegn Wigan. Úlfarnir eru í 18. sæti með 35 stig en Bristol gengur ekkert þessa dagana. Liðið er í 20. sæti með 32 stig og er aðeins búið að vinna einn af síðustu sex leikjum sínum. Birkir Bjarnason var svo kominn á bekkinn hjá Aston Villa eftir að byrja þrjá fyrstu leikina eftir komu sína til félagsins. Hann kom inn á sem varamaður á 73. mínútu fyrir Alan Hutton í 3-1 tapi Villa gegn Barnsley. Aston Villa er ekki búið að vinna leik á þessu ári en það er búið að tapa sex af sjö og fá aðeins eitt stig.
Enski boltinn Mest lesið Vonn á batavegi eftir þriðju aðgerðina Sport Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Sport Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Enski boltinn Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baskalandi Fótbolti Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Fótbolti Reynir markahæstur hjá Melsungen og Gísli gerði mest fyrir Magdeburg Handbolti Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Sport „Ég skil ekki hvernig fólk getur skrifað svona“ Sport Heppnin með Bayern á leið í langþráð undanúrslit Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Sjá meira