Antonio Conte ætlar ekki að ganga í gildru Jose Mourinho Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2017 08:00 Antonio Conte og Jose Mourinho. Vísir/Getty
Antonio Conte, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur næga ástæðu til að brosa þessa daganna þar sem Chelsea-liðið er með tíu stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en Ítalinn brosti ekki þegar hann frétti af „gríni“ Jose Mourinho, knattspyrnustjóra Manchester United. Jose Mourinho er fyrir löngu orðinn þekktur fyrir það að reyna að stunda sálfræðihernað gegn öðrum stjórum í bestu liðum deildarinnar. Mourinho sagði að Chelsea-liðið myndi aldrei misstíga sig og missa niður forystuna því þeir vinni leiki sína með skyndisóknum. Það eina broslega við þetta var kannski að þetta var haft eftir Mourinho sem hefur oftar en ekki beitt varnarsinnuðum leikaðferðum sjálfur. Antonio Conte var þó ekki hrifinn og hann tjáði sig um þetta eftir 1-1 jafnteflið á móti Burnley í gær. BBC sagði frá. „Hann er bara að grínast. Ég hef reynsluna til að átta mig á því,“ sagði Antonio Conte þegar hann var spurður út í ummæli Jose Mourinho. Jose Mourinho lét þessi orð falla eftir 2-0 sigur á Watford en United-liðið hefur nú leikið sextán deildarleiki í röð án þes að tapa. Manchester United í sjötta sæti í töflunni, tólf stigum á eftir toppliði Chelsea. Antonio Conte er ekki sá eini sem Mourinho hefur reynt að rugla í með ummælum sínum. Knattspyrnustjórar eins og Arsene Wenger og Sir Alex Ferguson fengu góðan skammt af Mourinho-sálfræði á sínum tíma. Conte ætlar hinsvegar ekki að láta bjóða sér upp í dans. „Ég er ekki hrifinn af því að svara öðrum knattspyrnustjórum,“ sagði Antonio Conte skynsamur að vanda. Hann ætlar ekki að ganga í gildru Jose Mourinho.
Enski boltinn Mest lesið Vonn á batavegi eftir þriðju aðgerðina Sport Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Sport Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Enski boltinn Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baskalandi Fótbolti „Ég skil ekki hvernig fólk getur skrifað svona“ Sport Eins leiks bann og sekt fyrir hnefahöggið Körfubolti Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Sport Reynir markahæstur hjá Melsungen og Gísli gerði mest fyrir Magdeburg Handbolti Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Fótbolti Guðrún gerði sér góða ferð til Portúgal Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool fyrsta liðið til að sækja sigur gegn Sunderland Burnley sótti lygilegan sigur og Villa vann þökk sé sjálfsmarki City kláraði Fulham fagmannlega í fyrri hálfleik Frank rekinn frá Tottenham Sjáðu ótrúlega dauðafærið sem Palmer klúðraði og öll mörkin úr enska Finnst ólukkan elta Liverpool Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Sjá meira