Leikjavísir

Staðfesta viðbót við Horizon Zero Dawn

Kjartan Kjartansson skrifar
Aloy, aðalsöguhetja Horizon Zero Dawn, glímir við vélfygli.
Aloy, aðalsöguhetja Horizon Zero Dawn, glímir við vélfygli.
Framleiðendur Horizon Zero Dawn staðfestu að viðbót við leikinn sé í þróun um leið og þeir greindu frá mikilli velgengni hans. Leikurinn hefur nú selst í 2,6 milljónum eintaka á tveimur vikum frá því að hann kom út.

Horizon Zero Dawn hefur fengið góða dóma hjá gagnrýnendum eftir að hann kom út út 28. febrúar. Guerilla Games, framleiðandi leiksins, staðfesti sölutölurnar fyrir helgi og staðfesti um leið að aukaefni fyrir leikinn væri væntanlegt.

„Þetta er aðeins upphafið að sögu Aloy og könnun okkar á heimi Horizon Zero Dawn en teymið er þegar komið á fullt við að bæta við söguna,“ segir í tilkynningu Guerilla Games.

Breska blaðið Express segir tilkynninguna staðfestingu á að unnið sé að viðbót við leikinn. Framleiðendurnir hafa fram að þessu ekki viljað svara spurningum um hvenær hún gæti verið væntanleg.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.