Við elskum malbik 31. mars 2017 14:30 Nýja malbikunarstöðin er glæsileg. Hún er staðsett við Keflavíkurflugvöll. MYND/HLYNUR ÞÓR HJALTASON
Gunnar Örn Erlingsson, sviðsstjóri framkvæmdadeildar, segir að verkefnastaða fyrirtækisins sé mjög góð og mörg spennandi verk framundan. „Strax eftir páska byrjum við að malbika Norðfjarðargöng og reiknum með að í þau fari um 17 þúsund tonn af malbiki og í kjölfarið byrjum við á jarðgöngum vð Bakka á Húsavík. Síðan erum við að byrja að yfirleggja báðar flugbrautirnar og flugvélastæði fyrir flugvélar á Keflarvíkurflugvelli. Vegagerðin var svo nýlega með útboð á verkefnum næstu mánaða og við erum að vinna í því núna," segir Gunnar. „Við erum nær eina fyrirtækið sem hefur malbikað jarðgöng á Íslandi síðustu tuttugu árin og höfum auk þess séð um að malbika flesta flugvelli á landinu. Við sinnum stórum sem smáum verkefnum og höfum unnið mikið fyrir Vegagerðina og sveitarfélög um allt land,“ upplýsir Gunnar.Nýr tækjakosturTækjakostur Hlaðbæjar-Colas er sá besti sem völ er á. Nýlega voru tvær nýjar malbikunarstöðvar teknar í notkun, önnur er við Keflavíkurflugvöll en hin er færanleg og nýtist m.a. við jarðgangavinnu. „Við höfum endurnýjað og bætt við tækjaflotann síðasta árið og innan skamms fáum við svokallaðan malbiksmatara sem verður sá eini sinnar tegundar á landinu. Hann er millistig á milli malbikunarvélarinnar og vörubílanna,“ útskýrir Gunnar.Endurvinna malbikHlaðbær-Colas hefur tekið við malbiksafgöngum um árabil og hefur staðið að þróunarverkefni sem snýr að endurvinnslu malbiks. „Við viljum endurnýta það að fullu. Við höfum m.a. notað endurunnið malbik í göngustíga í samvinnu við Grindavíkurbæ, t.d. í kringum Grindavík og við Bláa lónið.“ Spurður um ástand vega á landinu segist Gunnar vera bjartsýnn í þeim efnum. „Sveitarfélögin eru almennt að gefa í og eftir erfiða tíð er farið að huga betur að ástandi vega, til dæmis hefur Reykjavíkurborg nær tvöfaldað sitt framlag til malbikunar. Ráðamenn sjá að þörfin fyrir nýtt malbik er komin að þolmörkum, eins og allir sjá sem keyra um götur borgarinnar. Það gengur ekki að horfa á gatnakerfið grotna niður, það er allt of mikið í húfi. Íbúarnir eru ósáttir og göturnar verða að vera í lagi.“Innleiða gæðakerfiHlaðbær-Colas vinnur stanslaust að umbótum og hefur innleitt gæðakerfin ISO14001 og OHASA 18001. „Annað snýr að umhverfisvottun og í því felst m.a. að taka betur tillit til umhverfis, spara olíu og takmarka útblástur. Við viljum líta okkur nær hvað þetta varðar. Til að fá þessa vottun er fyrirtækið reglulega tekið út af BSI. Hitt snýr að öryggi og heilsu starfsmanna og öðrum sem vinna með okkur. Við viljum gæta fyllsta öryggis þar sem þetta getur verið stórhættuleg vinna, sérstaklega þegar við erum að malbika umferðargötur. Við erum einnig sífellt að þróa malbikið betur og vinna að því að lengja endingu þess,“ segir Gunnar. Malbikunarstöðin Hlaðbær-Colas býður upp á fyrsta flokks þjónustu varðandi allt sem viðkemur malbikun og gatnaframkvæmdum almennt. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að aðstoða viðskiptavini og veita þeim faglega ráðgjöf varðandi verkefni og úrbætur, hvort sem það er fyrir einstaklinga, húsfélög, fyrirtæki, verktaka eða sveitarfélög.
Mest lesið Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent „Listamaðurinn“ leitar að þeim bestu í íslensku atvinnulífi Framúrskarandi fyrirtæki EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira