Berahino segist hafa verið byrlað ólyfjan og hann hatar West Brom Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. mars 2017 07:30 Saido Berahino yfirgaf WBA og gekk í raðir Stoke. vísir/getty
Saido Berahino, framherji Stoke í ensku úrvalsdeildinni, segir ástæðu þess að hann var úrskurðaður í átta vikna langt bann fyrir lyfjamisnotkun fyrr á þessari leiktíð vera að honum var byrjað ólyfjan á skemmtistað. Berahino spilaði ekki fyrir uppeldisfélag sitt West Bromwich Albion frá september og fram í janúar þegar hann var svo á endanum seldur til Stoke fyrir tólf milljónir punda. „Það er erfitt að sætta sig við leikbann fyrir eitthvað sem maður gerði ekki,“ segir þessi 23 ára gamli leikmaður í viðtali við BBC en flestir héldu að hann hefði verið að reykja gras. Þannig voru fyrstu fréttir. Hann segir magnið sem fannst í lyfsýni hans vera mjög lítið sem sannar að hann ætlaði sér aldrei að neita lyfjanna. „Maður fer út á lífið og veit í raun ekkert hverjir eru í kringum mann. Það er fólk þarna úti sem vill skemma fyrir þér. Vissulega var ég á skemmtistað og tek ábyrgðaleysið á mig. En eftir þetta fór allt niður á við. Ég skil ekki enn þann dag í dag af hverju einhver myndi gera mér þetta,“ segir Berahino. Framherjinn ungi er svakalega reiður út í sitt fyrrverandi félag, WBA, og vandar knattspyrnustjóranum Tony Pulis ekki kveðjurnar. „Enginn hjá félaginu kom mér til varnar. Það var mjög erfitt að fá ekki að gera það sem maður elskar. Það var erfiðast,“ segir Berahino sem mátti ekki æfa með liðinu í fjóra mánuði en allan tímann sagði Pulis að hann væri ekki í leikformi. Berahino einfaldlega hatar West Brom, félagið sem hann byrjaði að spila með þegar hann var aðeins ellefu ára gamall. „Ég var niðurdreginn. Hvern einasta morgunn mætti ég á æfingasvæðið en vildi ekki vera þarna. Það er erfitt að fara úr því að elska einhvern stað í það að hata hann. Hatur er sterkt orð en mig langaði alls ekki að vera þarna lengur,“ segir Saido Berahino.
Enski boltinn Mest lesið Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Medalíur að skemmast á Vetrarólympíuleikunum Sport Gjóðarnir unnu Super Bowl sannfærandi Sport Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Sjáðu liðin sem Strákarnir okkar geta ekki mætt í riðlakeppni HM Handbolti Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Enski boltinn „Hún hegðar sér eins og díva“ Sport Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Sport „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Fleiri fréttir Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Tottenham í tómu tjóni Chelsea glutraði niður góðri forystu gegn Leeds United Ræddu mögulegan arftaka Pep Langerfiðasta leiktíð Slot: „Leikmennirnir finna vonbrigðin“ „Hann er kominn í rétta stöðu“ „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Sjá meira