Bílar

Vorsýning SsangYong hjá Benna

Finnur Thorlacius skrifar
SsangYong Rexton, Korando og Tivoli .
SsangYong Rexton, Korando og Tivoli .
Nú sér brátt fyrir endann á vetrinum og því tímabært að skipuleggja ferðalög sumarsins. Bílabúð Benna ætlar, af því tilefni, að slá upp Vorsýningu SsangYong. Í fréttatilkynningu kemur fram að jepparnir frá SsangYong; Rexton, Korando og Tivoli verði í öndvegi á sýningunni.  

Að sögn Benedikt Eyjólfssonar hjá Bílabúð Benna eru þeir allir fjórhjóladrifnir og hafa slegið í gegn hjá Íslendingum fyrir fallegt útlit, vel útilátinn staðalbúnað og hagstætt verð. Sýningin fer fram að Tangarhöfða 8, laugardaginn 8. apríl og stendur frá kl. 12:00 til 16:00. Allir eru hjartanlega velkomnir.






×