Dinosaur Jr. með tónleika á Íslandi í sumar Stefán Árni Pálsson skrifar 27. apríl 2017 11:30 Skemmtilegt band. visir/getty
Dinosaur Jr. kemur fram í Silfurbergi í Hörpu þann 22. júlí en þetta kemur fram í tilkynningu frá Senu. Dinosaur Jr. var ein af áhrifamestu hljómsveitum jaðarrokksins á níunda áratugnum. Sveitin var stofnuð árið 1984 og kom þá með ferskan andvara inn í rokksenu Bandaríkjanna. Upprunalegu meðlimirnir eru J Mascis, Lou Barlow og Murph og tóku þeir aðeins upp þrjár plötur í fullri lengd áður en mannabreytingar urðu á sveitinni á síðustu öld. Nú eftir að tríóið tók aftur upp þráðinn hafa strákarnir gefið út fjórar plötur í fullri lengd. Síðan þeir komu aftur saman hafa þeir vakið sérstaka hrifningu fyrir lifandi flutning og má þar t.d. nefna 30 ára afmælistónleika fyrstu plötu þeirra árið 2015 þar sem þeir buðu áhorfendum upp á hrífandi nostalgíuveislu við frábærar viðtökur. Fyrir ári gáfu þeir út plötuna Give a Glimpse of What Yer Not með glás af nýju efni en sú plata hlaut mikið lof gagnrýnenda og er með hið stórfína meðaltal 80/100 á Metacritic. Aðeins 1.200 miðar verða í boði og hefst miðasalan fimmtudaginn 11. maí kl. 10 á Harpa.is/dino.
Mest lesið Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Lífið David kemur áhugalausri Victoriu til varnar Lífið Ljóðrænt hótel á Akureyri Lífið Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Lífið Selja herrasetur í Þingholtunum Lífið „Drullið ykkur í burtu“ Lífið Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Lífið Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lífið Aldraður og moldaður Tom Cruise til bjargar jörðinni Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Sjá meira