Tævanskir leikarar auglýsa te á íslensku: „Heldurðu að það sé hægt að fela lyktina?“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 9. maí 2017 14:02 Íslenskan er víða. Vísir
Sumir segja að íslenskan sé í útrýmingarhættu en engu að síður leynist hún víða, meðal annars í tævanskri auglýsingu þar sem verið er að auglýsa te. Það má sjá konu banka upp á hjá manni í afskekktum fjallakofa. Svo virðist sem að hún hafi runnið á lyktina en maðurinn er að drekka te-ið sem verið er að auglýsa. Þetta væri vart í frásögu færandi nema hvað leikararnir ræða saman á íslensku og fylgir tævanskur texti með. „Hvernig fannstu mig?“ spyr maðurinn á íslensku og fær til baka svarið „Ég fann lyktina.“ Maðurinn spyr þá hvernig hún hafi fundið lyktina. „Heldurðu að það sé hægt að fela lyktina?“ svarar konan áður en að samræðurnar halda áfram á íslensku. Fjallað er um auglýsinguna á ske.is. Þar er sagt frá því að Studio Reflex, íslenskt upptökustúdió, hafi fengið það verkefni fyrr á árinu að búa til kennslumyndband fyrir erlenda leikara með það að markmiði að kenna leikurunum að bera fram íslensk orð og setningar. Úr varð þessi auglýsing sem sjá má hér að neðan.
Mest lesið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf Moroccanoil slítur samstarfi við Eurovision Tónlist Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Hátíðin Kveldúlfur í annað sinn um helgina Tónlist Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira