58. leikur tímabilsins hjá Manchester United í kvöld | Ná ekki metinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. maí 2017 17:45 Wayne Rooney fagnar marki á móti Swansea um síðustu helgi. Vísir/Getty
Það hefur verið nóg að gera hjá Manchester United á þessu fyrsta tímabili liðsins undir stjórn Jose Mourinho. Liðið spilar gríðarlega mikilvægan leik í kvöld þegar liðið mætir spænska liðinu Celta Vigo í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Þetta er 58. keppnisleikur Manchester United á tímabilinu 2016-17 en liðið hefur auk leikja í ensku úrvalsdeildinni farið langt í bikarkeppnunum og svo í Evrópudeildinni þar sem United er að berjast fyrir sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Gangi allt upp hjá Manchester United þá mun það alls spila 64 leiki á leiktíðinni sem er aðeins tveimur leikjum frá félagsmetinu. Manchester United spilaði 66 leiki á þrennutímabilinu 2008-09 þegar liðið vann Englandsmeistaratitilinn, enska bikarinn og Meistaradeildina auk þess að taka þá í meistarakeppni UEFA og heimsmeistarakeppni félagsliða. Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United 2008-09, notaði 36 leikmenn þetta tímabil. Fjórir af þeim, Cristiano Ronaldo, Nemanja Vidic, John O'Shea og Carlos Tevez, náðu að spila yfir 50 leiki þetta tímabil. Ellefu af þessum 36 leikmönnum léku fimm leiki eða færri. Jose Mourinho hefur notað 28 leikmenn á þessu tímabili en aðeins þeir Paul Pogba og Marcus Rashford eiga möguleika á því að ná 50 leikjum. Þrír af þessum 28 leikmönnum hafa leikið fimm leiki eða færri. Manchester United liðið hefur þegar spilað 34 leiki í ensku úrvalsdeildinni, einn leik um Samfélagsskjöldinn, sex leiki í enska deildabikarnum, fjóra leiki í enska bikarnum og loks tólf leiki í Evrópudeildinni.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Vinícius á förum? Fótbolti UEFA lýsir yfir vantrausti gagnvart Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Varamarkvörður City verður einn dýrasti markvörður sögunnar „Iraola spilar neðri deildar fótbolta á háu stigi“ Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Hausverkur fyrir Iraola Alonso vill tvo hálffertuga í liðið Segir að Defoe hafi skrópað á æfingu í fyrsta stjórastarfinu Chiesa elskar Liverpool og vonast eftir „nýju upphafi“ Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Arsenal sagt hafa áhuga á því að kaupa Vinícius Júnior United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Sjá meira