Kemst ekki aftur til Kanada vegna íslenskrar nafnahefðar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 3. maí 2017 10:54 Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Thor Henriksson, Íslendingur sem búsettur hefur verið í Kanada frá 1969 hefur staðið í ströngu við innflytjendayfirvöld þar í landi. Þau vilja ekki viðurkenna mistök sem gerð voru þegar Thor fluttist til Kanada ásamt móður sinni á sínum tíma og hafa valdið honum þó nokkrum vandræðum. Fjallað er um málið á vef CBC, kanadíska ríkisútvarpsins þar sem rætt er við Thor.Íslenskt nafn Thors er Þorsteinn Þorsteinsson en við komuna til Kanada frá Íslandi árið 1969 virðist landamæravörðurinn sem stimplaði mæðginin inn í landið ekki hafa áttað sig á íslenskri nafnahefð. Taldi landamæravörðurinn að Þorsteinn hlyti að bera eftirnafn föðurs síns, sem ekki var með í för, og var nafn Þorsteins því skráð sem Þorsteinn Sæmundsson á ótímabundnu landvistarleyfi Þorsteins. Mistökin gera honum erfitt um vik að ferðast en til þess að komast aftur inn í Kanada þarf Thor nú að framvísa skírteini sem staðfestir ótímabundið landvistarleyfi hans. Hann hefur ekki getað fengið slíkt skírteini og getur heldur ekki sótt um kanadískt vegabréf.Barist við skrifræðið í áratug Í frétt CBC kemur fram að innflytjendayfirvöld í Kanada segir að Thor þurfi að framvísa gögnum sem sýni fram á tengsl Þorsteins Þorsteinssonar og Þorsteins Sæmundssonar, eitthvað sem Thor segist fyrir löngu hafa gert. Thor segir hafa barist fyrir þessu í tíu ár og sent fjölmargar umsóknir með fylgigögnum í gegnum árin, án árangurs. Hefur hann meðal annars aflað gagna frá Íslandi, látið þýða þau og vottað, allt til þess að útskýra fyrir yfirvöldum í Kanada hvernig íslensk nafnahefð virkar.„Manni langar bara til þess að gefast upp en maður verður að halda áfram að berjast gegn þessu nafnlausa, andlitslausa skrifræði,“ Thor, sem tók upp eftirnafnið Henriksson þegar móðir hans tók saman við mann sem bar það eftirnafn, segir að hann hafi nú fengið lögfræðing í lið með sér og að markmiðið sé á endanum að fá kanadískt ríkisfang.Svo virðist vera að frétt CBC hafi hreyft við yfirvöldum í Kanada en á Facebook-síðu Thor segist hann hafa fengið símtal frá „ákveðinni ríkisstofnun,“ og þakkar hann guði fyrir að hafa aðgang að faxtæki.
Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Íslandi Innlent Dagný Ósk látin Innlent Segja upp tveimur sérfræðingum Innlent Bannaði Trump að banna fjölmiðla Erlent Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Erlent Veturinn verði Rússum erfiður Erlent Þakplötur og trampólín á flugi Innlent Rúta með skólabörn um borð fór út af veginum Innlent Færri þunganir í áhættuhópi með nýrri tegund fósturskimunar Innlent Fleiri fréttir Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Sjá meira