Tveir borgarar létust í átökum milli Indverja og Pakistana Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. maí 2017 13:57 Indverskir hermenn í Kasmír. Vísir/EPA
Indverskir og pakistanskir hermenn skiptust á skotum á laugardaginn í Kasmír héraði með þeim afleiðingum að tveir borgarar létu lífið og sex særðust. Guardian greinir frá. Manish Mehta, talsmaður indverska hersins, segir að pakistanskir hermenn hafi átt upptökin að átökunum með því að skjóta á indverskar herstöðvar á Nowshera svæðinu svokallaða sem skiptir héraðinu upp á milli Indverja og Pakistana. Pakistanski herinn hefur þvertekið fyrir að hafa átt upptök að átökunum og segja talsmenn hans að indverskir hermenn hafi sjálfir hafið skothríðina með þeim afleiðingum að þrír pakistanskir borgarar særðust. Samkvæmt upplýsingum frá Shahid Iqbal, svæðisstjóra indverska hluta svæðisins, létust tveir borgarar á svæðinu vegna átakanna, 13 ára gömul stúlka og 51 árs ára gamall maður. Fyrr í mánuðinum sökuðu indversk yfirvöld pakistanska hermenn um að hafa myrt tvo indverska hermenn og vanvirt lík þeirra en pakistönsk yfirvöld hafa neitað þeim ásökunum. Átök hafa aukist að undanförnu á svæðinu og eru þau nú þau mestu frá því að ríkin tvö samþykktu vopnahlé árið 2003. Bæði Indverjar og Pakistanar hafa gert tilkall til Kasmír héraðsins frá því að ríkin fengu sjálfstæði frá Bretum árið 1947. Ríkin hafa tvisvar sinnum háð stríð vegna héraðsins en bæði ríki hafa yfir að búa kjarnorkuvopnum.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira