Fornleifafræðingar fundu 17 múmíur í grafreit í Egyptalandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. maí 2017 11:23 Frá grafreitnum. Vísir/Getty
Egypskir fornleifafræðingar nálægt borginni Minya í Egyptalandi hafa uppgötvað grafreit með 17 múmíum en þetta er fyrsti fundur sinnar tegundar á svæðinu. Borgin er rúma 220 kílómetra sunnan við Kaíró, höfuðborg landsins. Guardian greinir frá. Á svæðinu má finna margskonar grafreiti fyrir þúsundir dýra og því var fundurinn einkar merkilegur þar sem ekki hafa fundist grafnir menn áður. Að sögn Khaled al-Anani, fornleifaminjaráðherra Egyptalands, er fundurinn sögulegur þar sem múmíurnar eru í einkar góðu ásigkomulagi. „Þetta er fyrsti slíki grafreiturinn sem finnst á þessu svæði. Múmíurnar voru vel varðveittar og því var líklegast um að ræða hátt setta ríkisaðila eða presta í Egyptalandi til forna.“ Grafreiturinn er rúmlega 8 metra fyrir neðan yfirborð jarðar og er talið að mennirnir hafi verið grafnir á tímum forn Egypta. Vinna á svæðinu er á frumstigi og vonast fornleifafræðingarnir til þess að marga mikilvæga muni megi finna á svæðinu. Ferðamannaiðnaðurinn í Egyptalandi er að miklu leyti rekinn á slíkum uppgötvunum en hann hefur átt undir högg að sækja að undanförnu vegna stjórnmálaástandsins í landinu.
Mest lesið Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Hin 25 ára Silja Sóley oddviti Sósíalista í Reykjavík Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Eins árs rannsókn lauk með ellefu handtökum á Íslandi Innlent Búið að ákæra og jafnvel dæma í tengdum málum Innlent „Farið að líkjast vöruúrvalinu í sovéskri kjörbúð“ Innlent „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ Innlent Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Innlent Fleiri fréttir FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Sjá meira