Bað um ársbirgðir af kjúklinganöggum í heimsins útbreiddasta tísti Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 11. maí 2017 11:26 Carter Wilkinson á útbreiddasta tíst allra tíma.
Nýtt tíst hefur velt tísti Ellen DeGeneres frá Óskarsverðlaununum árið 2014 úr sessi sem útbreiddasta tíst allra tíma. Tístið snýst um kjúklinganagga. Ef til vill héldu margir að meti Ellenar yrði ekki haggað en stjörnum prýdd sjálfsmynd hennar frá Óskarsverðlaununum hefur verið endurtíst 3,4 milljón sinnum. Það óhugsandi hefur hins vegar gerst og það er táningur frá Nevada-ríki Bandaríkjanna hefur slegið Ellen við. Það eina sem hann gerði var að spyrja forsvarsmenn skyndibitastaðarins Wendy's hversu mörg endurtíst hann þyrfti að fá til þess að fá ókeypis ársbirgðir af kjúklinganöggum.HELP ME PLEASE. A MAN NEEDS HIS NUGGS pic.twitter.com/4SrfHmEMo3— Carter Wilkerson (@carterjwm) April 6, 2017 Það stóð ekki á svarinu. Sá sem sér um Twitter-reikning Wendy's svaraði að hann þyrfti að fá 18 milljónir endurtísta og þá hófst söfnunin. Einfalt en áhrifaríkt en það tók Carter Wilkerson um einn mánuð að safna nógu mörgum endurtístum til þess að slá met Ellenar. Hún virðist reyndar ekki vera par sátt við að missa metið og fékk meðal annars leikarann Bradley Cooper með sér í lið til þess að reyna að slá tísti Wilkerson við. Án árangurs.This is the most important thing you'll watch today. Bradley Cooper and I need your help. pic.twitter.com/jUbv5YCpQf— Ellen DeGeneres (@TheEllenShow) April 14, 2017 Í vikunni barst svo staðfesting frá heimsmetabók Guinnes um að tístið um kjúklinganaggana væri útbreiddasta tíst allra tíma. Skömmu síðar ákvað Wendy's svo að verða við beiðni Wilkerson um ókeypis ársbirgðir af kjúklinganöggum, þrátt fyrir að töluvert vantaði upp á að tístinu hafi verið endurtíst átján milljón sinnum.Í augnablikinu er staðan þannig að tísti Wilkerson hefur verið endurtíst hátt í 3,6 milljón sinnum á meðan tíst Ellenar er fast í rúmlega 3,4 milljónum endurtísta..@carterjwm is now the most retweeted tweet of all-time. That's good for the nuggets, and $100k to @DTFA. Consider it done. #nuggsforcarter pic.twitter.com/k6uhsJiP4E— Wendy's (@Wendys) May 9, 2017
Tengdar fréttir Er þetta besta "selfie"-mynd allra tíma? Óskarskynnirinn Ellen DeGeneres bregður á leik með stjörnunum. 3. mars 2014 03:23 Enn reynir fólk að toppa Ellen Joan Collins, Ben Kingsley og fleiri endurskapa "selfie“-myndina frægu. 13. mars 2014 17:30 Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu Lífið samstarf Edda með tárin í augunum Lífið Fleiri fréttir Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Sjá meira
Er þetta besta "selfie"-mynd allra tíma? Óskarskynnirinn Ellen DeGeneres bregður á leik með stjörnunum. 3. mars 2014 03:23
Enn reynir fólk að toppa Ellen Joan Collins, Ben Kingsley og fleiri endurskapa "selfie“-myndina frægu. 13. mars 2014 17:30