Helgi Bergs stýrir starfsemi GAMMA í Sviss Hörður Ægisson skrifar 26. maí 2017 11:31 Helgi Bergs stýrði fjárfestingabankastarfsemi Kaupþings í London á árunum 2005 til 2008.
GAMMA Capital Management hefur ráðið Helga Bergs til að stýra starfsemi félagsins í Sviss, en stefnt er að opnun skrifstofu þar síðar á þessu ári. Helgi mun jafnframt vinna með hópi fyrirtækjaráðgjafar hjá GAMMA, en það teymi telur nú samtals átta starfsmenn, í Reykjavík, London, New York og nú Sviss, að því er fram kemur í tilkynningu. Helgi hefur tveggja áratuga reynslu af störfum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hann stýrði fjárfestingabankastarfsemi Kaupþings samstæðunnar frá London á árunum 2005 til 2008 og var þar áður framkvæmdastjóri Kaupþings í London. Helgi starfaði áður hjá Iceland Seafood International og hefur á undanförnum árum stýrt miðlunarstarfsemi verðbréfafyrirtækisins Birwood í London. „GAMMA hefur lagt mikla áherslu á að efla alþjóðlega starfsemi félagsins í kjölfar afnáms gjaldeyrishafta til auka úrval fjárfestingarkosta erlendis. GAMMA hóf starfsemi í London árið 2015 og vinnur að opnun skrifstofu í New York. Þriðja erlenda starfsstöðin verður því í Sviss og við gerum ráð fyrir að hefja starfsemi í Zürich í sumar, en það er mikið ánægjuefni að fá reynslumikinn mann á borð við Helga Bergs til þess að stýra starfseminni þar. Með öflugri fyrirtækjaráðgjöf í fjórum löndum mun GAMMA nú geta boðið íslenskum fyrirtækjum og fjárfestum upp á alhliða ráðgjöf varðandi erlend fyrirtækjaverkefni, erlenda fjármögnun og samskipti við erlenda fjárfesta,“ er haft eftir Gísla Haukssyni, stjórnarformanni GAMMA.
Mest lesið Greiðsluáskorun Samstarf Loka verslun Útilífs í Smáralind Viðskipti innlent „Eitt sinn var ég ekki svo lánsöm að tilheyra stóru vinkonusamfélagi“ Atvinnulíf Birgir til Banana Viðskipti innlent Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Viðskipti innlent Nálgast samkomulag um TikTok Viðskipti erlent Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Neytendur Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Viðskipti innlent Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Neytendur Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Taka tvær Airbus-þotur til á leigu Stefán stefnir á opnun fyrir jól: „Þetta verður bullandi stemning“ Vilja selja Landsbankann Lísbet nýr lögfræðingur Viðskiptaráðs Ráðin forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Yrði fljótt kvíðinn með aleiguna í Bitcoin Kormákur og Skjöldur yfirgefa Leifsstöð Egill Örn inn fyrir Stefán hjá Solid Clouds Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Bein útsending: Borgar sig að vanmeta menntun? Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ Sjá meira